Skoðun

Til á­réttingar

Kári Stefánsson skrifar

Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar og forsetaframbjóðandi lét hafa það eftir sér í viðtalsþætti í Ríkisútvarpinu að Katrín Jakobsdóttir þáverandi forsætisráðherra hefði sýnt af sér ábyrgðarleysi þegar hún „tók afstöðu með einkafyrirtæki og gegn Persónuvernd“ í deilum um þátttöku íslenskrar erfðagreiningar í vörnum gegn Covid 19.

Nú skulum við skoða efni màlsins sem Helga var að barma sér yfir: Samkvæmt sóttvarnarlögum var það hlutverk sóttvanarlæknis að skipuleggja og framkvæma, varnir gegn Covid 19 og veittu lögin honum víðtækar heimildir til þess. Hann leitaði til íslenskrar erfðagreiningar um margvíslega aðstoð, eins og að greina sjúkdóminn, raðgreina veiruna úr öllum sem greindust, hanna hugbúnað til að halda utan um gögn sem urðu til, greina gögnin og sækja í þau nýja þekkingu sem mætti nýta í baráttunni við faraldurinn. Allt þetta gerði Íslensk erfðagreining í umboði sóttvarnarlæknis og að hans beiðni en á eigin kostnað. Fyrirtækið var um langan tíma allt lagt undir þjónustu við sóttvarnir.

Þegar langt var liðið á faraldurinn ákvarðaði Persónuvernd hins vegar að Íslensk erfðagreining hefði í vinnu sinni fyrir sóttvarnarlækni brotið Persónuverndarlögin vegna þess að hún hefðií raun réttri verið að stunda vísindarannsókn en þóst vera að sinna sóttvörnum og hafði þar að engu orð sóttvarnarlæknis, eins og það hefði ekki mátt búast við því að hann vissi sjálfur um hvað hann hefði beðið. Katrín Jakobsdóttir studdi sóttvarnarlækni í þessu máli en ekki Íslenska erfðagreiningu sem var eingöngu að vinna í hans umboði. Að öllum líkindum gerði hún það vegna þess að hún gerði sér grein fyrir því að án þeirrar aðstoðar sem Persónuvernd ákvarðaði að væri ólögleg hefði verið ógjörningur að sinna sóttvörnum á þeim tíma sem faraldurinn var í hámarki. Katrín tók afstöðu með hagsmunum fólksins í landinu sem var í hættu á þessum tíma en ekki vafasamri ákvörðun Persónuverndar. 

Helga sagði í fyrrnefndum þætti að ég, Kári Stefánsson, hefði hótað því að fara í mál við Persónuvernd og gaf í skyn að Katrín hefð stutt mig í því. Hvort tveggja er rangt, ég hótaði því ekki að fara í mál við Persónuvernd, ég sagðist ætla að fara í mál til þess að fá hnekkt þessari einu ákvörðun Persónuverndar sem ég og gerði og það mál vann ég í Héraði. Á það minntist Helga hins vegar ekki í viðtalinu. Ákvörðun Persónuverndar er ekki lengur gild enda var öll þessi vinna Íslenskrar erfðagreiningar unnin í samræmi við sóttvarnarlög og til þess að hlúa að hagsmunum samfélagsins.

Höfundur er forstjóri Íslenskar erfðagreiningar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×