300 aðilar fengur 4000 milljarða að láni Um 300 hundruð aðilar fengu yfir 4000 milljarða króna að láni hjá stóru bönkunum þremur. Lán til þessara aðila nema gervöllum skatttekjum ríkisins í meira en áratug. Innlent 3. apríl 2009 18:33
Rannsóknarnefndin: 100 stærstu viðskiptavinir með helming lánanna Útlán Glitnis, Kaupþings og Landsbankans til 100 stærstu lántakenda þeirra námu um helmingi af heildarútlánum bankanna þriggja. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Rannsóknarnefnd Alþingis sem ætlað er að kanna bankahrunið. Nefndin stóð fyrir blaðamannafundi í dag þar sem þar sem Páll Hreinsson formaður og Tryggvi Gunnarsson kynntu framgang og stöðu rannsóknar nefndarinnar. Viðskipti innlent 3. apríl 2009 16:42
Ákveða sjálfir hvort þeir upplýsa um hagsmunatengsl sín Þingmenn geta ákveðið það sjálfir hvort þeir gefi upplýsingar um hagsmuni sína og eignir samkvæmt drögum að reglum sem þingflokkar á Alþingi hafa náð sátt um. Reglurnar taka hvorki til skulda eða maka þingmanna. Innlent 9. mars 2009 18:41
Ábending úr bankakerfinu hratt af stað rannsókn á fjölmiðlamönnum Ábending innan úr bankakerfinu varð til þess að rannsóknarnefnd Alþingis ætlar að kanna þátt fjölmiðlafólks í hruni íslensku bankanna. Innlent 9. mars 2009 12:00
Jón Baldvin reyni á styrk sinn í prófkjöri Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir óskoruðum stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem formann Samfylkingarinnar. Tilefni yfirlýsingarinnar eru orð Jóns Baldvins Hannibalssonar um að hún ætti ekki að gefa kost á sér áfram. Innlent 15. febrúar 2009 16:08
Frysting eigna Sléttir fjórir mánuðir eru frá því bankarnir hrundu og enn hafa engar ákærur litið dagsins ljós. Hætta er á að búið sé að skjóta undan ávinningi brota þegar rannsókn tekur langan tíma, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um bankahrunið. Rannsóknarnefnd um bankahrunið er enn að safna gögnum og verið er að tengja tölvur hjá embætti sérstaks saksóknara. Innlent 6. febrúar 2009 18:33
Vinnuhópur rannsakar siðferði í tengslum við bankahrunið Forsætisnefnd Alþingis gekk nýverið frá skipan þriggja manna í vinnuhóp sem ætlað er að leggja mat á hvort skýringar á falli íslensku bankanna og tengdum efnahagsáföllum megi að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði. Innlent 16. janúar 2009 17:09
Rannsóknarnefndin tekin til starfa Rannsóknarnefnd Alþingis sem ætlað er að rannsaka aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna og tengda atburði hefur tekið til starfa. Á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu sem nefndin hélt í dag kom fram að nefndin hefur þegar fundað með fulltrúum í fjármálalífinu á borð við skilanefndir bankanna, forsvarsmenn Kauphallar, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka. Innlent 9. janúar 2009 14:33
Rætt um rannsóknarnefnd Alþingis Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, mælti í morgun fyrir frumvarpi um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna. Frumvarpið er lagt fram af forseta Alþingis og formönnum allra stjórnmálaflokka sem eiga þar sæti. Innlent 27. nóvember 2008 11:22
Áætlanir um að ljúka þingi í dag Áætlanir eru um að fundum Alþingis verði jafnvel frestað í dag samkvæmt þingsályktunartillögu sem liggur fyrir þinginu. Innlent 13. desember 2007 09:40
Trúnaðarbrestur hjá sjálfstæðismönnum leiddi til slita Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, óskar sínum mönnum í borgarstjórn til hamingju með að hafa myndað nýjan meirihluta í borginni og segir á ferðinni nýja kynslóð úr öllum flokkum sem unnið geti að góðum verkum. Innlent 12. október 2007 16:01
Meira frelsi til skoðana í nýrri ríkisstjórn Formaður Samfylkingarinnar segir að stjórnarliðum leyfist nú að hafa skoðanir og skýtur þannig föstum skotum að fyrri ríkisstjórrn. Stjórnarliðar hafa enda tjáð sig frjálslega mál sem einhugur er ekki um í ríkisstjórninni. Innlent 24. september 2007 12:03
Félags- og tryggingamálanefnd fjalli um erlenda verkamenn Ögmundur Jónasson, fulltrúi Vinstri - grænna í félags- og tryggingamálanefnd, hefur óskað eftir því við formann nefndarinnar, Guðbjart Hannesson, Samfylkingunni, að nefndin verði kölluð saman hið fyrsta til þess að fjalla um erlenda verkamenn og réttarstöðu þeirra í ljósi fréttaflutnings undanfarna daga. Innlent 29. ágúst 2007 16:47
Íslendingar taka við rekstri Ratsjárstofnunar Íslendingar taka í dag við rekstri Ratsjárstofnunar af Bandaríkjamönnum og þar með rekstri íslenska loftvarnakerfisins. Er það í samræmi við samninga Íslendinga og Bandaríkjamanna sem gerðir voru við brotthvarf Bandaríkjahers frá Íslandi í fyrra. Innlent 15. ágúst 2007 07:45
Vill taka upp eðlileg samskipti við Palestínustjórn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra vill taka upp eðlileg samskipti við þjóðstjórn Palestínumanna og hyggst heimsækja Palestínu til að kanna hvernig Íslendingar geti beitt sér betur þar. Innlent 6. júní 2007 08:03
Ögmundur áfram þingflokksformaður Vinstri - grænna Ögmundur Jónasson verður þingflokssformaður Vinstri grænna á komandi kjörtímabili en þingflokkurinn skipti í dag með sér verkum. Varaformaður þingflokksins verður Katrín Jakobsdóttir og ritari er Kolbrún Halldórsdóttir. Innlent 29. maí 2007 14:40
Reykjavíkurborg tapar 4,3 milljarða króna Tap Reykjavíkurborgar á árinu 2006 nemur rúmum 4,3 milljöðrum króna þegar horft er til bæði A- og B-hluta rekstrarreiknings. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Er þetta um sex milljörðum króna lakari afkoma en gert var ráð fyrir í í fjárhagsáætlun ársins 2006 Innlent 15. maí 2007 14:23
Íslendingar að huga að sínum vörnum sjálfir Íslendingar þurfa nú í auknum mæli að huga að sínum vörnum sjálfir. Þetta segir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra. Innlent 8. maí 2007 20:13
Stjórnarþingmenn fari með hálfsannleik í málefnum aldraðra Formaður Landsambands eldri borgarara segir stjórnarþingmenn fara með hálfsannleik í málefnum aldraðra, rétt fyrir kosningar. Skattbyrði láglaunafólks hafi ekki minnkað og kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi ekki aukist um 60-75 % hjá eldri borgurum, eins og stjórnarþingmenn haldi fram. Innlent 8. maí 2007 12:14
Sjálfstæðismenn heimsóttu Ölgerðina Málefni Barna og unglingingageðdeildar, fyrirhugað álver í Helguvík og mannekla á spítölum var meðal þess sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins voru spurðir að þegar þeir heimsóttu starfsmenn Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í dag. Innlent 26. apríl 2007 19:21
VG vill lækka lyfjaverð og komugjöld á spítala Taka þarf á mannekluvandanum á spítölunum og lækka þarf lyfjaverð og komugjöld á heilsugæslustöðvar og spítala hér á landi. Þetta lögðu frambjóðendur Vinstri grænna áherslu á í vinnustaðaheimsókn sinni á Landspítalanum í dag. Innlent 25. apríl 2007 18:57
Stóru flokkarnir einhuga í skólamálum Starfs- og iðnnám verður hafið til vegs og virðingar og jafnréttiskennsla tekin upp í skólum á næstu árum, ef marka má afstöðu allra flokka, nema Frjálslynda flokksins, til skólamála. Flokkarnir eru flestir sammála um að sporna þurfi við brottfalli íslenskra og erlendra nemenda úr framhaldsskólum. Innlent 24. apríl 2007 19:15
Segir Steingrím J. forhertan Steingrímur J. Sigfússon er forhertur stuðningsmaður landbúnaðarstefnu sem á stóran þátt í uppblæstri og gróðureyðingu. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, í harðri gagnrýni á formann Vinstri grænna í Silfri Egils í dag, og sagði Steingrím auk þess slá skjaldborg um okurvexti og okurverð. Innlent 22. apríl 2007 19:15
Listi Íslandshreyfingarinnar í Norðaustukjördæmi ákveðinn Hörður Ingólfsson, markaðsráðgjafi á Akureyri, mun skipa fyrsta sæti á lista Íslandshreyfingarinnar - lifandi lands í Norðausturkjördæmi. Búið er að raða á lista framboðsins í kjördæminu. Innlent 22. apríl 2007 17:43
Framsókn og Samfylking tapa fylgi í Suðurkjördæmi Framsóknarflokkurinn tapar einum þingmanni og Samfylkingin tveimur í Suðurkjördæmi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkissjónvarpið og Morgunblaðið í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tveimur þingmönnum. Innlent 22. apríl 2007 14:36
Sendinefnd á leið til Kaliforníu Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, og eiginmaður hennar, Kristinn Björnsson, heimsækja næstu daga Kaliforníu í boði efri deildar fylkisþings Kaliforníu. Innlent 16. apríl 2007 15:52
Jón Baldvin ekki á lista hjá Íslandshreyfingunni Jón Baldvin Hannibalsson verður ekki á framboðslista hjá Íslandshreyfingunni í kosningunum í vor. Þetta staðhæfði Ómar Ragnarsson formaður flokksins í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér á Vísi. Innlent 13. apríl 2007 08:49
Boðar nýja löggjöf um greiðsluaðlögun Félagsmálaráðherra hefur boðað nýja löggjöf um úrræði vegna greiðsluerfiðleika fólks og hefur skipað nefnd til undirbúa frumvarp. Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar segir sérkennilegt að boða til nýrrar löggjafar nú rétt fyrir kosningar, þar sem frumvarp sama efnis hefur legið fyrir á Alþingi í 10 ár og aldrei komist í gegn. Innlent 12. apríl 2007 18:57
Kjósendur neikvæðastir út í formann Samfylkingar Kjósendur annarra flokka en Samfylkingarinnar eru neikvæðastir út í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur af leiðtogum stjórnmálaflokkanna og eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins sérstaklega neikvæðir út í hana. Stuðningsmenn flokkanna eru hins vegar flestir jákvæðir til Geirs H. Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins. Innlent 8. apríl 2007 18:33
Hafnar samstarfi við flokka sem vilja ekki stóriðju Formaður Framsóknarflokksins segist hafna samstarfi við flokka sem vilja stoppa stóriðju og virðist þar með nánast hafna samstarfi við alla aðra en sjálfstæðismenn. Hann segir þó ekki tímabært að ákveða frekara samstarf. Þetta kemur fram í nýjum þætti, sem hefst í kvöld, strax á eftir Íslandi í dag. Alla næstu daga rifjum við upp úr stjórnmálasögu formanna stjórnmálaflokkanna. Innlent 2. apríl 2007 18:57