Skoðun

Á Bessa­stöðum?

Ingunn Ásdísardóttir skrifar

Hvernig forseta vil ég sjá á Bessastöðum?

Í svari mínu við þessari spurningu vil ég líta til framtíðar og skoða hvaða eiginleika ég tel að forseti Íslands þurfi að hafa til að gegna því embætti.

Reynsla af stjórnmálum, þekking á innviðum og gangverki stjórnskipunar, gott tengslanet innanlands og utan – allt eru þetta afar nauðsynlegir og góðir eiginleikar sem vissulega munu koma sér ákaflega vel í embættinu.

En það sem ég einkum vil sjá hjá mínum forseta er víðsýni, framsýni og ekki síst djörfungu.

Djörfungu eins og fólst í því að ráðast í að reisa Hörpu upp úr holunni, þegar allt annað var í kaldakoli. Það var djörfung sem byggðist á víðsýni og framsýni og skilningi á því hvers virði það væri fyrir hrunþjóð að eignast hús eins og Hörpu, hvers virði það væri fyrir endurreisn sjálfstrausts þjóðarinnar, hvers virði það væri fyrir menningu og þroska lífsins í landinu að eiga Hörpu, í stað þess að neyðast til að horfa ofan í holuna næstu tuttugu árin.

Ég vil forseta sem getur tekið ákvarðanir af slíku tagi, ef og þegar þörf krefur.

Ég vil forseta sem veit og skilur hve fræði og vísindi skipta miklu máli fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu þjóðar. Forseta sem hefur þor til að standa gegn öfgum og afturhaldsöflum og treysta vísindamönnum til að taka yfir og stýra aðgerðum við aðstæður sem enginn hefur þurft að takast á við fyrr, hvort sem um er að ræða heimsfaraldur eða náttúruhamfarir.

Ég vil forseta sem kann að skilja á milli feigs og ófeigs þegar slíkar aðstæður koma upp.

Nú veit ég vel að forsetaembættið er ekki beinn þátttakandi í stjórn landsins eða stjórnmálaþvargi daganna. En forseti landsins þarf að hafa innsæi, þekkingu og víðtækan skilning á þeim eyrarkaupum sem þar fara fram, þekkja innviði og umleitanir, samninga og málamiðlanir á þeim vettvangi. Vegna þess að á ögurstundum er forseti lykilpersóna á hinu pólitíska taflborði.

Ég vil forseta sem íhugar mjög vandlega hvort hann/hún ætlar að nota hinn margumtalaða málskotsrétt og sem hefur sýnt gegnum fyrri verk sín og starfsferil að ákvörðun af slíkri stærðargráðu er ekki tekin að vanhugsuðu máli. Og ég vil forseta sem að tekinni ákvörðun um að nýta þennan rétt er treystandi til að nýta hann af víðsýni, framsýni og djörfung, íslensku samfélagi til gagns og góðs.

Í embætti forseta vil ég sjá manneskju sem ég treysti til að standa undir þessum atriðum öllum.

Og það gerir Katrín Jakobsdóttir.

Höfundur er þjóðfræðingur og þýðandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Lík­hús

Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar

Skoðun

Sundtískan

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar

Sjá meira


×