Lífið

Greindu frá kyninu á ströndinni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sandra og Hilmar eru nýlega flutt heim frá Los Angeles þar sem Sandra var í MBA námi.
Sandra og Hilmar eru nýlega flutt heim frá Los Angeles þar sem Sandra var í MBA námi. Sandra Björg

Sandra Björg Helgadóttir þjálfari og eiginmaður hennar Hilmar Arnarsson eiga von á sínu fyrsta barni í september. Hjónin tilkynntu á Instagram í gær að von sé á dreng.

„Lítill Hilmarsson á leiðinni,“ skrifa hjónin við færsluna þar sem má sjá þegar þau sprengja svokallaða litabombu á ströndinni í Malibu. Út úr bombunni kom blár litur sem gefur til kynna að um dreng er að ræða.

Sandra og Hilmar kynntust í námi í Háskóla Íslands og útskrifuðust bæði tvö sem Iðnaðarverkfræðingar árið 2014. Þau létu pússa sig saman við hátíðlega athöfn í Háteigskirkju þann 22. júlí árið 2022 á blautum föstudegi. Veislan var stórglæsileg, haldin í veislusal Sjálands í Garðabæ þar sem gestum var boðið upp á alvöru partý.

Sandra og Hilmar fluttu til Íslands síðastliðið haust eftir tveggja ára búsetu í Los Angeles. Sandra hefur vakið athygli fyrir þjálfun sína bæði í Absaloute Training og Barre og Hilmar hefur sömuleiðis verið að þjálfa í Crossfit undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×