Innlent

Dæmdir fyrir ofbeldishrinu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Dómurinn féll í Héraðsdómi Suðurlands.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Suðurlands. Vísir/Vilhelm

Tveir menn hlutu sex mánaða skilorðsbundna fangelsisdóma hvor um sig í Héraðsdómi Suðurlands á dögunum fyrir fjölda ofbeldisbrota. Þeir voru ákærðir fyrir samanlagt sex brot, fjórar líkamsárásir, árás gegn tveimur lögregluþjónum og eina hótun.

Brotin áttu sér stað árin 2021 og 2022.

Þeir frömdu eitt þessara brota saman. Þar voru þeir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa um nótt slegið annan mann tvisvar sinnum með glerflösku í höfuðið, nánar tiltekið í hnakka og enni. Fyrir vikið féll maðurinn til jarðar en þar hann hafði staðið aftur upp slógu mennirnir hann fjórum sinnum með krepptum hnefa í kjálkann.

Fyrir vikið hlaut maðurinn ýmsa áverka, líkt og 4,5 sentímetra skurð sem náði niður að beini.

Annar sakborningurinn var ákærður fyrir fjögur brot til viðbótar. Það fyrsta varðar hótun þar sem honum var gefið að sök að halda hníf upp að hálsi annars einstaklings. Í öðru brotinu var hann ákærður fyrir líkamsárás, með því að ýta öðrum manni til jarðar. Þriðja brotið varðar líkamsárás sem átti sér stað á veitingastað. Þar var honum gefið að sök að slá enn annan mann með krepptum hnefa í andlitið sem féll fyrir vikið á hurð og síðan til jarðar.

Í fjórða lagi var hann ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að ráðast á tvo lögreglumenn, meðal annars með því að sparka í annan þeirra eftir að hafa verið handtekinn, bæði inni í lögreglubíl og fyrir framan lögreglustöð. Jafnframt var honum gefið að sök að hóta öðrum lögreglumanninum ítrekað ofbeldi og lífláti.

Hinn sakborningurinn var ákærður fyrir eitt brot til viðbótar, líkamsárás sem átti sér stað inni á vínveitingastað. Honum var gefið að sök að ráðast að manni með því að ská hann í andlitið með krepptum hnefa.

Mennirnir voru sakfelldir fyrir öll þessi brot. Líkt og áður segir hlutu þeir báðir sex mánaða dóm, skilorðsbundin til tveggja ára. Annar þeirra þurfti að greiða rímar tvær milljónir í sakarkostnað og hinn 1,5 milljónir.

Þeim síðarnefnda var einnig gert að greiða miskabætur og málskostnað tveggja sem urðu fyrir árásum hans. Samtals hljóðar það upp á 1,4 milljónir króna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×