Íslendingaliðin nálgast Meistaradeildina Íslendingaliðin Bodö/Glimt frá Noregi og FCK frá Danmörku unnu bæði sigra í fyrri leikjum liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 16. ágúst 2022 20:55
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-Þór/KA 2-0 | Markaþurrð Selfyssinga lokið Selfoss hafði ekki skorað í síðustu fimm leikjum áður en Þór/KA kom í heimsókn. Brenna Lovera braut ísinn á fimmtu mínútu. Þór/KA hótaði jöfnunarmarki í síðari hálfleik en gegn gangi leiksins skoraði Susanna Joy Friedrichs annað mark Selfyssinga og gulltryggði stigin þrjú. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. Íslenski boltinn 16. ágúst 2022 20:40
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur 5-1 ÍBV | Þróttur upp í þriðja sæti eftir stórsigur á ÍBV Þróttur Reykjavík átti ekki í miklum erfiðleikum með ÍBV í 13. umferð Bestu-deildar kvenna í kvöld. Þróttur lék á alls oddi og vann fjögurra marka stórsigur, 5-1, þar sem Ólöf Sigríður Kristinsdóttir fór á kostum. Íslenski boltinn 16. ágúst 2022 19:50
Aron Einar og félagar á toppnum Aron Einar Gunnarsson og liðsfélagar hans í Al Arabi eru á toppi katörsku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína á tímabilinu. Fótbolti 16. ágúst 2022 16:47
Man. City sækir bakvörð sem var í unglingaliði Barcelona Manchester City hefur fest kaup á hinum Spánverjanum Sergio Gómez. Hann leikur iðulega í stöðu vinstri bakvarðar og lék síðast með Anderlecht í Belgíu. Gómez skrifar undir fjögurra ára samning við Englandsmeistarana. Enski boltinn 16. ágúst 2022 16:30
Davíð Örn frá næstu vikurnar: „Nárinn fór“ Davíð Örn Atlason, leikmaður Víkings, þurfti að fara af velli í stórleik Bestu deildar karla í gærkvöld eftir að meiðast á nára í fyrri hálfleik. Hann bíður nú eftir að komast í ómskoðun til að fá nánari greiningu á meiðslunum. Íslenski boltinn 16. ágúst 2022 15:31
Collina hvetur dómara á HM í Katar að nota ekki tæknina Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá FIFA og einn farsælasti dómari sögunnar, talar fyrir því að dómarar treysti ekki of mikið á tæknina á komandi heimsmeistaramóti. Fótbolti 16. ágúst 2022 15:00
Giggs sakaður um að skalla systurina og hóta að skalla kærustu sína líka Réttarhöldin yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, halda áfram. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi yfir þriggja ára skeið. Í dag bar Emma Greville, systir Kate, vitni. Enski boltinn 16. ágúst 2022 13:30
Þórsarar reyndu ekki að fá bulldómnum breytt Knattspyrnudeild Þórs ákvað að sækjast ekki formlega eftir því að Hermann Helgi Rúnarsson slyppi við leikbann eftir rauða spjaldið sem hann fékk ranglega vegna misskilnings dómarans reynslumikla, Erlends Eiríkssonar, í leik gegn Selfossi. Íslenski boltinn 16. ágúst 2022 13:01
Lán í óláni að Tómas skyldi hafa rotast í miðjum leik Tómas Meyer, knattspyrnudómari meðal annars, rotaðist í leik nýverið eftir að hafa fengið bolta í höfuðið. Tómas var fluttur með hraði upp á sjúkrahús enda féll hann meðvitundarlaus til jarðar. Nú hefur komið á daginn að höfuðhöggið hafi verið hálfgert lán í óláni. Íslenski boltinn 16. ágúst 2022 11:31
Segja Ronaldo vera til sölu | Aubameyang gæti leyst hann af hólmi Breska ríkisútvarpið heldur því fram að Cristiano Ronaldo gæti yfirgefið Manchester United áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 1. september næstkomandi. Útvarpsstöðin TalkSport tekur í sama streng og segir leikmanninn vera til sölu. Þá greinir Sky Sports frá því að Man United gæti sótt Pierre-Emerick Aubameyang til að leysa hann af hólmi. Enski boltinn 16. ágúst 2022 11:00
Mánuður síðan farbann Gylfa Þórs rann út: Lögregla svarar ekki fyrirspurnum Í dag er sléttur mánuður síðan farbann knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar rann út í Bretlandi. Hann hafði verið í farbanni í Englandi síðan hann var handtekinn þann 16. júlí 2021 vegna gruns um kynferðisbrot gegn ungmenni. Fótbolti 16. ágúst 2022 10:01
Formaður knattspyrnudeildar Víkings ósáttur: „Eins óíþróttamannslegt og það verður“ Það var töluverður hiti í leik Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla í gærkvöld enda um að ræða liðin sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Alls fóru tíu gul spjöld á loft, sem og eitt rautt, en þá var frammistaða boltasækjara leiksins einnig til umræðu. Íslenski boltinn 16. ágúst 2022 09:30
Segir kaldhæðnislegt að leikmenn Man Utd vilji sjá félagið sækja fleiri leikmenn Manchester United hefur farið skelfilega af stað í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur tapað báðum sínum leikjum til þessa, fengið á sig sex mörk og aðeins skorað eitt. Það er þó kaldhæðnislegt að leikmenn félagsins vilji sjá forráðamenn þess festa kaup á nýjum, og betri, leikmönnum. Enski boltinn 16. ágúst 2022 09:01
Sjáðu mörkin og rauða spjaldið úr stórleik Breiðabliks og Víkings Breiðablik og Víkingur gerðu 1-1 jafntefli í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, mánudag. Um er að ræða topplið deildarinnar og svo ríkjandi Íslands- og bikarmeistara. Þá fór rautt spjald á loft í síðari hálfleik. Mörkin og rauða spjaldið má sjá hér að neðan. Íslenski boltinn 16. ágúst 2022 08:00
Neville segir að um augnabliks brjálæði hafi verið að ræða hjá Núñez Liverpool og Crystal Palace gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik annarrar umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Darwin Núñez, framherji Liverpool, fékk rautt spjald í leiknum fyrir að skalla leikmann Palace. Enski boltinn 16. ágúst 2022 07:31
Barcelona gerir allt til að neyða Braithwaite á brott Spænska félaginu Barcelona gengur misvel að losa sig við leikmenn til að rýma til fyrir þeim sem hafa samið við félagið í sumar. Daninn Martin Braithwaite er sérlega óvinsæll hjá stjórnendum félagsins. Fótbolti 15. ágúst 2022 23:30
Sigurður Heiðar: „Skorti hugrekki og trú þegar á hólminn var komið" Sigurður Heiðar Höskuldsson var missáttur við frammistöðu lærisveina sinna hjá Leikni Reykjavík þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Fram í Bestu deild karla í fótbolta í Úlfarsárdal í kvöld. Fótbolti 15. ágúst 2022 23:01
Mourinho splæsti í pizzupartý José Mourinho pantaði 60 pizzur fyrir leikmenn sína og starfslið eftir 1-0 sigur Roma á Salernitana í fyrstu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gærkvöld. Mikils er vænst af Roma á komandi leiktíð. Fótbolti 15. ágúst 2022 22:45
Jón Þórir: „Sáttur við jákvæð áhrif þeirra sem komu inná" Jón Þórir Sveinsson var vitanlega ánægður með leik sinna manna þegar Fram vann sannfærandi sigur gegn Leikni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fótbolti 15. ágúst 2022 22:21
Umfjöllun og viðtöl: Fram-Leiknir R. 4-1 | Fram forðast fallsvæðið enn frekar Fram hafði betur með fjórum mörkum gegn einu þegar liðið fékk Leikni Reykjavík í heimsókn í Úlfarsárdal í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fram er nú að gæla sterklega við að komast á efra skiltið á töflunni en Leiknir er enn í kjallaranum. Íslenski boltinn 15. ágúst 2022 21:04
Díaz bjargaði stigi eftir rautt spjald Núñez Liverpool og Crystal Palace skildu jöfn, 1-1, í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Liverpool spilaði síðasta hálftíma leiksins manni færri eftir að nýji maðurinn Darwin Núñez fékk beint rautt spjald. Enski boltinn 15. ágúst 2022 20:55
Alanyaspor staðfestir komu Rúnars Alex Rúnar Alex Rúnarsson hefur gengið frá lánssamningi við Alanyaspor í Tyrklandi. Hann kemur á láni frá Arsenal á Englandi. Fótbolti 15. ágúst 2022 20:48
Vlahovic og Di María í stuði í fyrsta leik Juventus vann 3-0 sigur á Sassuolo í fyrsta leik liðsins í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Nýji maðurinn Ángel Di María fór mikinn í sínum fyrsta leik fyrir þá svarthvítu. Fótbolti 15. ágúst 2022 20:40
Umfjöllun: Keflavík-KR 0-0 | Bæði lið ósátt með jafntefli Það var virkilega fallegt veður í Keflavík í kvöld þegar að heimamenn fengu KR í heimsókn á Nettóvöllinn. Sól og heiðsýrt en kólnaði talsvert þergar að líða tók á leikinn. Bæði liðin í hatramri baráttu um efstu sex sætin í Bestu deildinni. Fyrir leikinn var KR í sjötta sæti með 24 stig en Keflavík í því sjöunda með 21 og ljóst að bæði liðin myndu selja sig dýrt. Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir skemmtilega takta og mörg færi lauk leiknum með markalausu jafntefli, 0-0. Íslenski boltinn 15. ágúst 2022 19:50
Valgeir og félagar á toppinn í Svíþjóð Häcken, lið Valgeirs Lunddal Friðrikssonar, fór á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 1-0 sigri á Mjällby í kvöld. Fótbolti 15. ágúst 2022 19:31
Lyngby leitar enn fyrsta sigursins AGF vann 1-0 sigur á Lyngby í Árósum í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lærisveinar Freys Alexanderssonar leita enn síns fyrsta sigurs á leiktíðinni. Fótbolti 15. ágúst 2022 19:02
Segja Ronaldo sitja einan í kaffiteríunni og að hann sé ekki hrifinn af aðferðafræði Ten Hag Það er aldrei lognmolla í kringum Manchester United og þá sérstaklega ekki þegar liðinu gengur jafn illa og raun ber vitni. Nú hefur The Athletic heimildir fyrir því að Cristiano Ronaldo sitji einn og yfirgefinn í matsal félagsins og hagi sér reglulega eins og prímadonna sé eitthvað sem honum líkar ekki við á æfingum. Enski boltinn 15. ágúst 2022 16:00
„Háðugleg útreið“ Manchester United endaði með lögregluheimsókn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk um helgina tilkynningu um mann sem hafði misst stjórn á skapi sínu í heimahúsi er hann horfði á fótboltaleik. Lið hans var að tapa stórt en er lögregla kom á staðinn hafði hann náð að róa sig og sætt sig við tapið. Innlent 15. ágúst 2022 13:21
Stórleikur sem bæði lið verða að vinna Í kvöld mæta Íslands og bikarmeistarar Víkings á Kópavogsvöll og mæta þar toppliði Bestu deildar karla. Um er að ræða þau tvö lið sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og voru framan af tímabili talin líklegust til afreka í sumar. Nú er komið annað hljóð í landann og þurfa bæði lið á sigri að halda þar sem bæði KA og Valur virðast allt í einu ætla að blanda sér í toppbaráttuna. Íslenski boltinn 15. ágúst 2022 13:01
Markvarðamartröð KR: „Getur ekki barist um titla þegar markverðirnir gefa trúðamörk“ Íslenski boltinn