Innlent

Ís­lenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veð­málum

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Samkvæmt heimildum fréttastofu fara greiðslur eða hlunnindi frá Coolbet fram með ýmsum hætti. Sumir fá hjálp frá fyrirtækinu við að taka upp og klippa efni fyrir samfélagsmiðla, öðrum er flogið út á mót, hvort sem það eru íþróttaleikir eða pókermót. Aðrir fá fjármuni frá Coolbet til að veðja, sem þýðir að ef þeir tapa veðmálinu tapa þeir ekki eigin peningum en ef þeir vinna veðmálið fá þeir að halda hagnaðinum.
Samkvæmt heimildum fréttastofu fara greiðslur eða hlunnindi frá Coolbet fram með ýmsum hætti. Sumir fá hjálp frá fyrirtækinu við að taka upp og klippa efni fyrir samfélagsmiðla, öðrum er flogið út á mót, hvort sem það eru íþróttaleikir eða pókermót. Aðrir fá fjármuni frá Coolbet til að veðja, sem þýðir að ef þeir tapa veðmálinu tapa þeir ekki eigin peningum en ef þeir vinna veðmálið fá þeir að halda hagnaðinum. Getty

Lögregla hefur ekkert eftirlit með ólöglegum veðmálasíðum hér á landi þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri meti sem svo að hætta á peningaþvætti og skattsvikum í gegnum síðurnar sé mikil. Dæmi eru um að íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum. 

Í gær fjölluðum við um ólöglegar veðmálasíður sem eru áberandi hér á landi, sér í lagi Coolbet sem hvorki má starfrækja né auglýsa. 

Efni sem flokka mætti sem duldar auglýsingar er þó áberandi á samfélagsmiðlum. Eftir að fréttin birtist eyddu nokkrir myndböndunum af samfélagsmiðlum.

Í vinsælu hlaðvarpi Götustráka eru samstarfsaðilar tilgreindir með vörumerkjum í myndböndum. Hvergi er minnst á Coolbet en þáttastjórnandinn er oftast klæddur í peysu og með hatt merktu fyrirtækinu.

@gotustrakar

Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðandi. @arnar.jonsson #gotustrakar

♬ original sound - Götustrákar - Götustrákar

Vissi ekki að auglýsingar Coolbet væru ólöglegar

Einn vinsælasti einkaþjálfari landsins, Gummi Emil klæðist oft fötum merktu fyrirtækinu. Hann sagðist í viðtali ekki hafa hugmynd um að ólöglegt væri að auglýsa Coolbet hér á landi.

„Ég er ekki að auglýsa.“ 

En er það ekki auglýsing að vera í svona peysu í myndbandi?

„Nei, það myndi ég ekki segja. Þetta eru bara geggjuð föt. Sérðu hvað þetta er flott peysa?  Þetta er flottara en Metta sport, það er fjörutíu þúsund krónu galli. Þetta gáfu þeir mér frítt. Ég er með fullt af fötum frá þeim.“

Þannig þú færð engin skilaboð frá þeim að klæðast fötunum í myndböndum?

„Nei ég geri það bara af því að ég er alltaf í viðtölum og tími minn kemur ekki til baka. Tíminn minn er það verðmætasta sem ég hef.“

En það eru aðrar stórar stjörnur áberandi á miðlum Coolbet og í fötum merktu fyrirtækinu. Herra hnetusmjör er meðal annars áberandi á samfélagsmiðlum fyrirtækisins þar sem hann sést meðal annars í utanlandsferðum. Hann hefur hvorki svarað símtali né skilaboðum frá fréttastofu.

@coolbetmerch

Það styttist í Coolbet Open í Bratislava🔥 Minnum á live undanmótið í kvöld kl. 19:00 á Hugar💰

♬ original sound - Coolbet Ísland

Þá hefur starfsmaður Coolbet á Íslandi heldur ekki svarað símtölum í dag.

Samkvæmt heimildum fréttastofu fara greiðslur eða hlunnindi frá Coolbet fram með ýmsum hætti. Sumir fá hjálp frá fyrirtækinu við að taka upp og klippa efni fyrir samfélagsmiðla, öðrum er flogið út á mót, hvort sem það eru íþróttaleikir eða pókermót. Aðrir fá fjármuni frá Coolbet til að veðja, sem þýðir að ef þeir tapa veðmálinu tapa þeir ekki eigin peningum en ef þeir vinna veðmálið fá þeir að halda hagnaðinum.

Ekkert eftirlit

Yfirlögregluþjónn segir eftirlit með ólöglegum veðmálasíðum af skornum skammti.

„Það er ekkert eftirlit að öðru leyti en að þetta er starfsemi sem er refsiverð í atvinnuskyni,“ sagði Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra.

Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra hefur sérhæft sig í þessum málum enda kom hann að gerð skýrslu um áhættumat ríkislögreglustjóra vegna peningaþættis og fjármögnunar hryðjuverka.Stöð 2

Ný ógn

Birgir segir skattinn ekki fara með eftirlit með peningaþvætti eða mögulegum skattsvikum í gegnum ólöglegar veðmálasíður þar sem þær er ekki tilkynningaskyldar.

Síðurnar Coolbet og Betson séu ekki í sérstakri skoðun hjá lögreglu.

„Þar sem þessi ógn er tiltölulega ný komin á yfirborðið er unnið að sérstakri aðgerðaráætlun til að bregðast við áhættu vegna þess þannig það er sérstaklega til skoðunar hvernig unnt sé að bregðast við þessari ógn og áhættu.“

Veruleg hætta á peningaþvætti

Áhættan sem Birgir vísar í er tilgreind í áhættumati ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka sem Birgir kom að. Þar segir að þekktar aðferðir séu til að þvætta fjármuni í gegnum fjárhættuspil á netinu og hefur lögreglan vísbendingar um að íslenskir brotamenn nýti fjárhættuspil á erlendum vettvangi til peningaþvættis. Ætla megi að verulega skorti á að vinningar séu taldir fram til skatts. Engar takmarkanir eru á aðgengi að síðunum og veltir Birgir því fyrir sér hvort tilefni sé til að setja þær.

„Það er eitt af því sem þarf að skoða gaumgæfilega hvort það sé ástæða til að koma sérstöku opinberu eftirliti með starfsemi af þessu tagi.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×