Viðskipti innlent

Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári

Atli Ísleifsson skrifar
Tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta.
Tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta. Vísir/Vilhelm

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum apríl samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða fimm þúsund færri brottfarir en mældust í apríl í fyrra (-3,5 prósent). Ríflega þriðjungur brottfara voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Þar kemur fram að brottfarir Íslendinga hafi verið um 45 þúsund í apríl.

„Flestar brottfarir í apríl voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna, 32.400 talsins, eða tæplega fjórðungur (23,6%) heildarbrottfara. Bretar voru í öðru sæti, um 16.000 eða um ein af hverjum tíu brottförum (11,7%).

Brottfarir Pólverja voru í þriðja sæti eða 6,1% af heild og Frakkar í því fjórða (5,2%). Þar á eftir fylgdu Þjóðverjar (4,8%), Ítalir (4,7%), Danir (4,3%), Kanadamenn (3,3%), Spánverjar (4,0%) og Kínverjar (3,6%).

Brottfarir erlendra farþega frá áramótum

Frá áramótum hafa um 593 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 561 þúsund talsins. Um er að ræða 5,7% fjölgun milli ára. Samtals voru brottfarir á tímabilinu janúar til apríl í ár um 94,4% af þeim brottförum sem þær mældust á sama tímabili metárið 2018.

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga voru um 45 þúsund í apríl, 11.100 færri en í apríl 2023 (-19,8%). Hafa ber í huga að utanferðir Íslendinga í tengslum við páska voru í mars í ár en í apríl í fyrra. Frá áramótum (janúar-apríl) hafa um 180 þúsund Íslendingar farið utan en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 176 þúsund. Um er að ræða 1,9% fjölgun milli ára,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×