Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Jón Gnarr yngri betur þekktur sem Nonni Gnarr útskrifast úr menntaskóla í dag og útskriftarveislan fór fram í sama salnum í Elliðarárdal og kosningavaka Jóns Gnarr eldri fer nú fram. Bjarki Sigurðsson fréttamaður tók Nonna Gnarr tali sem var alveg á því að dagurinn væri um hann. Lífið 1.6.2024 23:25
Ofboðslega stolt af dóttur sinni Eygló Gunnþórsdóttir, móðir Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, segist mjög stolt af dóttur sinni og segir hana hafa staðið sig mjög vel í kosningabaráttunni. Lífið 1.6.2024 23:07
Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi eru stödd á kosningavöku óháðra á Nasa og bíða spennt eftir að fyrstu tölur berist. Lífið 1.6.2024 22:40
Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Heiður Berglind Þorsteinsdóttir er þrítugur vélstjóri á varðskipinu Þór en samhliða starfi sínu stundar hún nám í skipstjórn af kappi. Heiður rekur áhuga sinn á vélum niður að blautu barnsbeini og segir starfið á sjó vera gefandi þar sem það býður upp á marga möguleika. Lífið 1.6.2024 07:02
„Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni. Tónlist 1.6.2024 07:02
Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur Erna Ómarsdóttir, dansari og danshöfundur, er borgarlistamaður Reykjavíkur. Einar Þorsteinsson borgarstjóri afhenti Ernu viðurkenningu sína við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg sem lesa má að neðan. Menning 31.5.2024 16:45
Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Þorbjörg Hafsteinsdóttir frumkvöðull í heilsugeiranum, sem jafnan er kölluð Tobba Hafsteins, segist hafa fengið opinbera gagnrýni frá fagaðilum um skaðleg áhrif sykurs á líkamann. Hún segist hafa verið á undan sinni samtíð. Lífið 31.5.2024 15:58
Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kappræður Stöðvar 2, sem fram fóru í gær, voru brotnar upp með ýmsu móti. Meðal annars fengu frambjóðendur hraðaspurningar og gekk þeim afar misjafnlega. Lífið 31.5.2024 15:22
Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar Bylgjulestin er að leggja af stað og mun ferðast um landið, hitta hlustendur og taka þátt í fjörinu á hverjum laugardegi í beinni í allt sumar. Lífið samstarf 31.5.2024 15:07
Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Sunneva Halldórsdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum, sem heldur úti Instagram-síðunni Efnasúpan deildi nýverið uppskrift að meinhollum kjúklinganöggum með gómsætu meðlæti með fylgjendum sínum. Lífið 31.5.2024 14:01
Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Páll Óskar og Skrattar snúa bökum saman og koma í fram á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. Lífið 31.5.2024 13:50
„Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Marthe Sördal sigraði uppskriftakeppni Gott í matinn og Bylgjunnar. Hátt í fimmtíu uppskriftir bárust dómnefnd sem átti úr vöndu að velja. Senda mátti inn hverskonar uppskrift, kökur, brauð, eða mataruppskriftir, eina skilyrðið var að uppskriftin innihéldi hráefni frá MS. Lífið samstarf 31.5.2024 12:01
„Aldrei verið jafn stolt af mér“ „Ég trúi ekki að þetta ævilanga markmið sé loksins komið út,“ segir tónlistarkonan María Agnesardóttir eða MAIAA eins og hún kallar sig. MAIAA var að senda frá sér plötu og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lag sitt Lovesick. Tónlist 31.5.2024 11:32
Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Sigríður Jóna Kristjánsdóttir, eða Sigga á Grund eins og hún er alltaf kölluð var gerð að fyrsta heiðursborgara Flóahrepps í 80 ára afmælishófi hennar í Vatnsholti í Flóa í gærkvöldi. Lífið 31.5.2024 09:37
Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Bókaútgáfan Ævintýri.is var að gefa út nýja barnabók þar sem söguhetjan, eigandi bókarinnar, verður forseti Íslands. Lífið samstarf 31.5.2024 09:25
Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Eiríkur Ingi Jóhannsson forsetaframbjóðandi er fjölskyldufaðir sem er sjóaður í því að borða sterkan mat og hefur lifað af hryllilegt sjóslys. Hann segist aldrei hafa viljað fá sér húðflúr þó eitt hafi komið til greina. Lífið 31.5.2024 07:37
Hugsar vel um sig til að vera aðlaðandi fyrir Línu Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi kíró, og unnusta hans Lína Birgitta Sigurðardóttir athafnakona hafa verið nánast óaðskiljanleg frá fyrstu kynnum. Þau trúlofuðu sig í París í Frakklandi í október 2022 eftir að Gummi bað um hönd Línu í Tuileries Garden, rómantíkin uppmáluð. Makamál 31.5.2024 07:00
Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Íslendingar voru duglegir að tjá sig á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, á meðan forsetakappræður Stöðvar 2 fóru fram. Lífið 30.5.2024 23:18
Ellefu eftirtektarverð eldhús Eldhúsið er oft sagt hjarta heimilisins. Þar verjum við oft löngum tíma og eigum dýrmætar samverustundir með þeim sem eru okkur kærastir. Hönnun og útlit eldhússins gefur heildarmynd heimilisins mikinn karakter þar sem litaval, efniviður og smáhlutir rýmisins skapa stemningu þess. Lífið 30.5.2024 20:01
Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 30.5.2024 19:01
„Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ „Ég er í sjöunda himni með viðtökurnar á þessu öllu,“ segir listamaðurinn Villi Jóns. Villi sérhæfir sig í myndlist og sjónlist en hann stendur fyrir sýningunni Tvídrangar sem staðsett er á annarri og þriðju hæð Akranesvitans. Það var mikil stemning í opnunarhófinu þar sem Elín Ey, Íris Tanja og Eyþór Ingi stigu meðal annars á stokk. Menning 30.5.2024 15:00
Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði Páll Óskar og Skrattar leiða saman hesta sína og koma í fyrsta sinn fram saman á sviði, sem og í sitthvoru lagi, á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina, 2-4 ágúst. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. Tónlist 30.5.2024 14:28
Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, Herra Hnetusmjör, og unnusta hans Sara Linneth hafa sett íbúð sína við Digranesveg í Kópavogi á sölu. Þess má geta að parið bjó áður í annarri íbúð í sama húsi. Ásett verð er 84,9 milljónir. Lífið 30.5.2024 14:21
Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nemendur í 6. bekk Varmárskóla afhentu í gær Sólrúnu Öldu Waldorff bók sem þeir sömdu um batagöngu hennar síðan hún slasaðist alvarlega í eldsvoða fyrir nokkrum árum. Fram kemur í tilkynningu um bókina að Sólrún Alda hafi heimsótt skólann fyrr í vetur og sagt nemendum sögu sína. Heimsóknin hafi verið liður í verkefni um eldvarnir. Lífið 30.5.2024 14:14