Fótbolti

Læri­sveinar Freys einum leik frá því að takast hið ó­mögu­lega

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans eru einum leik frá því að tryggja sér áframhaldandi veru í efstu deild.
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans eru einum leik frá því að tryggja sér áframhaldandi veru í efstu deild. Getty/Nico Vereecken

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í KV Kortrijk unnu mikilvægan 1-0 sigur er liðið heimsótti Lommel í umspili um laust sæti í efstu deild Belgíu í kvöld.

Freyr tók við Kortrijk í janúar á þessu ári, en þá sat liðið í neðsta sæti belgísku deildarinnar. Hann er þriðji þjálfari liðsins á tímabilinu og belgískir fjölmiðlar lýstu þjálfarastöðunni sem „kirkjugarði þjálfaranna.“

Frey hefur hins vegar tekist að snúa genginu við og liðið tryggði sér sæti í umspili um að halda sæti sínu í efstu deild í síðustu umferð deildarkeppninnar í Belgíu. Það umspil hófst í kvöld þegar Kortrijk vann 1-0 sigur gegn Lommel í fyrri viðureign liðanna.

Alsíringurinn Abdelhak Kadri skoraði eina mark leiksins þegar hann kom Kortrijk yfir með marki úr vítaspyrnu á 14. mínútu og Kortrijk fer því með forystuna inn í seinni leikinn sem fram fer á heimavelli þeirra að viku liðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×