Erlent

Írans­­for­­seti fórst í þyrlu­­slysinu

Atli Ísleifsson og Eiður Þór Árnason skrifa
Ebrahim Raisi hafði gegnt forsetaembættinu í Íran frá árinu 2021. Hann tók við embættinu af Hassan Rouhani.
Ebrahim Raisi hafði gegnt forsetaembættinu í Íran frá árinu 2021. Hann tók við embættinu af Hassan Rouhani. AP

Ríkisfjölmiðlar í Íran hafa staðfest að Ebrahim Raisi, forseti Írans, sé í hópi þeirra sem hafi farist í þyrluslysi sem varð í norðurhluta landsins í gær. Utanríkisráðherrann Hossein Amir-Abdollahian lét auk hans lífið í slysinu, ásamt nokkrum til viðbótar.

AP segir frá þessu, en þyrlan, sem var í hópi þriggja sem var að flytja forsetann og fylgdarlið hans, skall til jarðar eftir að hafa lent í vandræðum í mikilli þoku í norðurhluta landsins.

Raisi var á leið til borgarinnar Tabriz í norðvesturhluta landsins, eftir að hafa sótt viðburð í tengslum við opnun nýrrar stíflu nærri asersku landamærunum. 

Raisi var í hópi harðlínumanna sem nánir voru æðstaklerki landsins, Ayatollah Ali Khamenei, og var af mörgum talinn líklegur eftirmaður hans.

Lög landsins gera ráð fyrir að forsetaskosningar muni nú fara fram í landinu innan fimmtíu daga. 

Hossein Amirabdollahian, utanríkisráðherra Írans, fórst einnig í þyrluslysinu. Hann hafði gegnt embætti utanríkisráðherra frá árinu 2021.AP
Fólk kom saman í Teheran, höfuðborg Íran í gær og hrópuðu slagorð beind gegn stjórnvöldum í Ísrael. Ap/Vahid Salem
Björgunarteymi röðuðu sér upp á svæðinu þar sem þyrlan hrapaði til jarðar. Moj News Agency/Azin Haghighi

Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA staðfestir að auk forsetans og utanríkistáðherrans hafi Mohammad Ali Al-e Hashem, klerkurinn til að fara með föstudagsbænirnar í Tabriz og hershöfðinginn Malek Rahmati, héraðsstjóri íranska héraðsins Austur-Aserbaídsjan í hópi látinna. Sömuleiðis hafi nokkrir lífverðir, þar með talinn Seyed Mehdi Mousavi, yfirmaður öryggisliðs forsetans, og áhafnarmeðlimir þyrlunnar látið lífið í slysinu.

Tók við embætti forseta árið 2021

Raisi, sem varð 63 ára, tók við embætti forseta Írans árið 2021 af Hassan Rouhani. Áður hafði Raisi starfað sem dómari. Hann bauð sig fyrst fram til forseta árið 2017 en beið þá lægri hlut gegn Rouhani, en Raisi var eftir kosningar skipaður forseti hæstaréttar. 

Umfangsmikil leit af þyrlunni fór fram eftir að tilkynnt var um slysið og buðu stjórnvöld meðal annars í Rússlandi, Tyrklandi, Aserbaídsjan og Armeníu fram aðstoð sína við leitina. 

Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, var í hópi fyrstu þjóðarleiðtoga heims til að heiðra Raisi og sagðist Modi mjög hryggur og í áfalli vegna dauða forsetans. 


Tengdar fréttir

Leitin enn ekki borið árangur

Leit að þyrlunni sem er sögð hafa brotlent í dag með forseta og utanríkisráðherra Íran innanborðs stendur enn yfir. Slæm veðurskilyrði hafa gert björgunarsveitum erfitt fyrir og yfirvöld nágrannalanda hafa boðið fram hjálp við leitina.

Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi

Þyrla íranska forsetans Ebrahim Raisi lenti harkalega í dag. Þetta kemur fram í írönskum ríkismiðlum án þess að frekari upplýsingar séu gefnar upp.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×