Lífið

Bíó og plokkfiskur á Pat­reks­firði um hvítasunnuhelgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Skjaldborg hefur alltaf verið mjög vinsæl kvikmyndahátíð og vel sótt.
Skjaldborg hefur alltaf verið mjög vinsæl kvikmyndahátíð og vel sótt. Patrik Ontkovic

Það stendur mikið til á Patreksfirði því um hvítasunnuhelgina verður haldin þar hátíð íslenskra heimildarmynda. Auk þess verður boðið upp á plokkfiskveislu og limbókeppni.

Skjaldborg er kraftmikil uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og áhugafólks um heimildamyndir á Íslandi enda eina íslenska kvikmyndahátíðin sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir en hátíðin verður haldin dagana 17. til 20. maí eða um hvítasunnuhelgina.

Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Kristín Andrea Þórðardóttir er ein af stjórnendum Skjaldborgar.

„Við erum með sex myndir í fullri lengd, sem verða frumsýndar á hátíðinni og sjö heimildastuttmyndir. Efnistökin eru af ýmsum toga og verður mjög fróðlegt fyrir alla áhorfendur og eins alla höfunda í faginu. Í fyrsta skipti í ár ætlum við að verðlauna sérstaklega heimildastuttmynd ársins, sem að við höfum ekki verið með verðlaun fyrir hingað til,” segir Kristín Andrea.

Kristín Andrea Þórðardóttir, sem er ein af þeim, sem fer fyrir Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina. Aðsend

Þetta hljómar allt mjög spennandi?

„Já, það er það. Svo erum við með stórkostlega heiðursgesti, sem ætla að koma og kíkja til okkar en það eru klipparar, sem heita Joe Bini og Maya Daisy Hawke, sem eru hjón og bestu kempur í faginu. Þau eru að velja Skjaldborg fram yfir Cannes kvikmyndahátíðina,” bætir Kristín Andrea við kampakát.

Heiðursgestir hátíðarinnar í ár eru Joe Bini og Maya Daisy Hawke margverðlaunaðir klipparar sem vinna bæði á sviði heimildamynda og leikinna. Aðsend

Á milli kvikmynda verður farið í skrúðgöngu, boðið verður upp á vestfirskan plokkfisk, keppt í limbó svo eitthvað sé nefnt.

Farið verður í skrúðgöngu á hátíðinni eins og alltaf.Patrik Ontkovic

„Við vonum til að sjá sem flesta fyrir vestan,” segir Kristín Andrea.

Frekari upplýsingar og miða á hátíðna má finna á vef hennar, Skjaldborg.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×