Íslenski boltinn

„Búinn að vera tilfinningarússibani“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jón Guðni Fjóluson
Jón Guðni Fjóluson Vísir/Arnar

Fótboltamaðurinn Jón Guðni Fjóluson hefur sigrast á miklu mótlæti síðustu misseri og náði í gær að komast aftur á völlinn eftir langt hlé.

Það var á sunnudagskvöldið í Víkinni sem Jón Guðni spilaði sinn fyrsta fótboltaleik í tvö og hálft ár eftir krossbandameiðsli sem hafa leikið hann grátt. En hvernig var tilfinningin að mæta aftur á völlinn?

„Það var bara frábær tilfinning og maður var búinn að bíða lengi eftir þessu. Það hefur ekki alltaf verið sjálfsagt að maður myndi snúa aftur en þetta var ógeðslega gaman maður,“ segir Jón Guðni kátur.

Jón Guðni spilaði fyrri hálfleikinn í 2-0 sigri Víkings á FH í gær og komst vel frá verkefninu þrátt fyrir að leika í vinstri bakverði í fyrsta skipti í rúman áratug. Allan atvinnumannaferilinn lék hann sem miðvörður.

Honum tókst að leggja upp mark fyrir Aron Elís Þrándarson undir lok hálfleiksins. Það var kærkomið eftir erfið undanfarin ár.

„Þetta er búinn að vera tilfinningarússibani. Þetta er ekki skemmtilegt og enginn fótboltamaður sem vill meiðast. En þetta eru búin að vera löng og erfið meiðsli, margar aðgerðir og mikið af inngripum. Ég aldrei komist út á völl þannig séð, ekki nema bara til að jogga og aldrei verið nálægt, í sjálfu sér. Þetta er búið að reyna mikið á, en loksins er maður komin í gegnum þetta og biðin var þess virði,“ segir Jón Guðni.

En hvað var erfiðast í þessu langa endurhæfingarferli?

„Erfiðast var að vita að ég þyrfti að fara í aðra aðgerð. Það var ári eftir fyrstu aðgerð en ég hafði þá fengið sýkingu í hnéð. Það kom í ljós og læknirinn segir, þegar ég vakna eftir svæfingu, að við eigum eftir að sjást töluvert mikið aftur. Það var erfiðasti parturinn í þessu.“

Áfram gakk

Jón Guðni hefur það fínt í dag og hlakkar til að fjölga mínútunum.

„Ég er bara furðulega góður. Það er allt í fínu standi, ekkert vesen á neinu svo ég get ekki kvartað,“ segir Jón Guðni og bætir við:

„Næstu skref er bara endurhæfing í dag og svo sjáum við hvernig staðan er á morgun. Það er bikarleikur á fimmtudaginn, við tökum þetta dag fyrir dag og sjáum hvernig staðan er. Við höldum bara áfram.“

Fréttina má sjá í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×