Fótbolti

Lygi­leg topp­bar­átta í Dan­mörku

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson er stór ástæða þess að FCK getur orðið Danmerkurmeistari þriðja árið í röð.
Orri Steinn Óskarsson er stór ástæða þess að FCK getur orðið Danmerkurmeistari þriðja árið í röð. Getty Images/Lars Ronbog

Þó úrslitakeppni Bestu deildar karla í fótbolta hafi ekki enn staðið undir væntingum og Íslandsmeistaratitillinn unnist nokkuð sannfærandi þá er ekki hægt að segja annað en svipað fyrirkomulag sé að gefa vel í Danmörku. Þar eru fjögur lið enn í bullandi baráttu um titilinn þegar þrjár umferðir eru til loka tímabils.

Það urðu heldur betur sviptingar í deildinni um helgina þegar Orri Steinn Óskarsson hjálpaði FC Kaupmannahöfn að vinna 3-1 útisigur á Bröndby. Sá sigur skilaði meisturunum upp á topp töflunnar með 58 stig á meðan gulklætt lið Bröndby fór alla leið niður í 4. sæti en þó aðeins tveimur stigum á eftir toppliðunum tveimur.

Sverrir Ingi Ingason og félagar unnu einnig sinn leik um helgina og eru jafnir toppliði FCK um þessar mundir á meðan Nordsjælland, sem vann einnig sinn leik um helgina, er líkt og Bröndby með 56 stig.

Jonas Hebo Goldmann, sparkspekingur TV 2 Sports í Danmörku, segir toppbaráttuna þar í landi aldrei hafa verið jafn spennandi.

„Það er magnað að sjá að þegar það eru þrjár umferðir eftir geta fjögur lið enn unnið titilinn. Það er enn ruglaðra að þrjú liðanna hafa örlögin í eign höndum.“

Goldmann segir að ríkjandi meistarar í FCK séu líklegastir til að hreppa hnossið eins og staðan er í dag en það á þó margt eftir að gerast. Hér að neðan má sjá hvaða leiki liðin eiga eftir.

  • FCK á eftir Midtjylland (heima), AGF (úti) og Nordsjælland (heima).
  • Midtjylland á eftir FCK (úti), Nordsjælland (úti) og Silkeborg (heima).
  • Bröndby á eftir Nordsjælland (heima), Silkeborg (úti) og AGF (heima).
  • Nordsjælland á eftir Bröndby (úti), Midtjylland (heima) og FCK (úti).

Það er ljóst að margt getur breyst frá því nú og þegar flautað verður til leiksloka þann 26. maí þegar lokaumferð deildarinnar fer fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×