Skoðun

Starfs­getu­mat gæti kostað líf

Svanberg Hreinsson skrifar

Við öryrkjar höfum lengi óttast það að sitjandi ríkisstjórn framkvæmi hótanir sínar um að innleiða starfsgetumat. Nú liggur fyrir að félags- og vinnumarkaðsráherra, formaður Vinstri grænna, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, ætlar að þvinga í gegnum þingið frumvarpi um endurskoðun örorku almannatrygginga sem inniheldur starfsgetumat. Formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, tók til máls um þau mál í þinginu 10. apríl síðast liðinn og sagði: „þá skora ég á alla þingmenn, ekki síst hæstv. ráðherra, að sjá myndina I, Daniel Blake, sem segir til um afleiðingar þess að innleiða starfsgetumat í Bretlandi. Í kjölfar innleiðingar starfsgetumats í Bretlandi sviptu um 4.000 einstaklingar sig lífi. Þessi mynd, segir í raun og veru allt sem segja þarf um þær embættisfærslur sem eru fyrirhugaðar frá hæstv. félagsmálaráðherra, um þá aðför sem hann hefur í huga gagnvart fötluðu fólki á Íslandi í dag.“

Á meðan Inga ræddi um stóraukinn fjölda sjálfsvíga meðal öryrkja og fatlaðra í Bretlandi eftir að þeir voru dæmdir vinnufærir í nýju starfsgetumati sem innleitt var þar í landi, sátu nývígður forsætisráðherra Bjarni Benediktsson og félags- og vinnumarkaðsráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson fyrir aftan hana á ráðherrabekknum. Ekki virtust þeir taka áhyggjur Ingu Sæland alvarlega, þar sem þeir voru bókstaflega hlæjandi á meðan hún talaði. Vanvirðingin sem þessi ríkisstjórn sýnir öryrkjum er hömlulaus.

Þrátt fyrir viðbrögð ráðherranna, er þessi umræða mjög brýn þar sem nú liggur fyrir frumvarp á Alþingi um umfangsmiklar breytingar á almannatryggingakerfinu á Íslandi, sem leggur ríka áherslu á starfsgetumat, svipað því sem innleitt var í Bretlandi. Ef við öryrkjar viljum komast hjá því að upplifa það sama óréttlæti og við höfum séð í Bretlandi þurfum við að láta heyra í okkur og að sjálfsögu kjósa rétt. Fólkið fyrst, svo allt hitt!

Höfundur er varaþingmaður Flokks fólksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×