Viðskipti erlent

Rekja meiri­hluta heims­losunar til 57 fram­leið­enda

Kjartan Kjartansson skrifar
Olíutankar sádiarabíska ríkisolíufélagsins Aramco í Jiddah. Félagið hagnaðist um 121 milljarð dollara í fyrra.
Olíutankar sádiarabíska ríkisolíufélagsins Aramco í Jiddah. Félagið hagnaðist um 121 milljarð dollara í fyrra. AP/Amr Nabil

Innan við sextíu framleiðendur jarðefnaeldsneytis og steinsteypu eru sagðir bera ábyrgð á meginþorra losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum frá 2016. Ríkisrekin jarðefnaeldsneytisfyrirtæki eru þau umsvifamestu samkvæmt nýrri greiningu.

Hópur 57 þjóðríkja og bæði ríkis- og einkarekinna fyrirtækja standa fyrir um áttatíu prósentum losunar vegna jarðefnaeldsneytis og steinsteypuframleiðslu í heiminum á tímabilinu 2016 til 2022 samkvæmt greiningu hugveitunnar InfluenceMap sem Reuters-fréttastofan segir frá. Hún byggir á tölum sem fyrirtækin gefa sjálf upp um losun sína auk opinberra gagna.

Stórtækustu losendurnir eru sádiarabíska ríkisolíufélagið Aramco, rússneska ríkisorkufyrirtækið Gazprom og indverska ríkiskolafélagið Coal India.

Greiningin leiddi ennfremur í ljós að flest fyrirtækjanna hefðu bætt í jarðefnaeldsneytisframleiðslu sína frá árinu 2015 þegar nær öll ríki heims skrifuðu undir Parísarsamkomulagið sem á að koma böndum á loftslagsbreytingar af völdum manna.

Losun manna á gróðurhúsalofttegundum hefur enda haldið áfram að aukast. Útblástur vegna orku hefur aldrei verið meiri en í fyrra samkvæmt tölum Alþjóðaorkumálastofnunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×