Lífið

Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ís­land keppir í Euro­vision

Lovísa Arnardóttir skrifar
Systurnar Elísabet, Elín og Sigríður tóku þótt fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2022. Nú skipuleggja þær, ásamt móður sinni, Ellen Kristjánsdóttur, samstöðutónleika með Palestínu sem fara fram á sama tíma og fyrri undankeppni Eurovision í ár.
Systurnar Elísabet, Elín og Sigríður tóku þótt fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2022. Nú skipuleggja þær, ásamt móður sinni, Ellen Kristjánsdóttur, samstöðutónleika með Palestínu sem fara fram á sama tíma og fyrri undankeppni Eurovision í ár. Mynd/Hulda Margrét

Hópur tónlistarmanna kemur fram á samstöðutónleikum með Gasa í Háskólabíó þann 7. maí klukkan 19.30. Á sama tíma keppir Ísland í fyrri undankeppni Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Söngkonan Elísabet Eyþórsdóttir, Beta, er ein þeirra sem kemur að skipulagningu tónleikanna.

Elísabet segir tónleikana vera annan valkost fyrir þau sem ekki vilja horfa eða fylgjast með Eurovision í ár. Aðallega snúist þeir þó um samstöðu með fólkinu á Gasa sem hafi upplifað miklar hörmungar síðasta hálfa árið.

„Ég og Zoey vinkona mín vorum, eins og margir aðrir, vorum búnar að tala um að vera með tónleika fyrir Palestínu. Mín skoðun er að allar þjóðir hefðu átt að neita að taka þátt í Eurovision en ég get ekki breytt því. Þannig ég hugsaði bara um hvað ég gæti gert til að hjálpa og það væri hægt að vera með tónleika,“ segir Elísabet.

Allur ágóði til Rauða krossins og UNICEF

Viðbrögðin hafi ekki staðið á sér. Þau sem koma fram á tónleikunum eru GDRN, Emmsjé Gauti,, Ásgeir Trausti, Una Torfa, Ellen Kristjánsdóttir, Eyþór Gunnarsson, Systur, Lay Low, Sigríður Thorlacius, Svala Björgvins, Pálmi Gunnarsson og hljómsveitin TÁR. Kynnir á tónleikunum er leikkonan Íris Tanja Flygenring.

„Það er ótrúlegt hvað við erum heppin að eiga svona frábært tónlistarfólk sem vilja koma saman og sýna samstöðu,“ segir Elísabet. Allir tónlistarmennirnir gefa vinnuna sína. Allur ágóði rennur svo til UNICEF á Íslandi og Rauða kross Íslands og mannúðarstarfs þeirra á Gasa.

Guðrún Ýr Eyfjörð, GDRN, kemur fram á tónleikunum. Vísir/Vilhelm

„Það eina sem þessir tónleikar snúast um er samstaða, að hjálpa á þann hátt sem við getum og að safna peningum. Það er svo hörmulegt ástandið. Maður er bara lamaður og vill gera allt sem maður getur til að hjálpa. Ég er svo þakklát að geta notað tónlistina í það,“ segir Elísabet.

Tónleikarnir séu tækifæri fyrir alla sem að þeim koma, tónlistarmenn, tæknifólk og áhorfendur, til að koma saman og sýna samstöðu.

Kölluðu eftir sniðgöngu

Á sama tíma og tónleikarnir fara fram fer fyrri undankeppni Eurovision fram í Malmö. Íslenski hópurinn er hluti af fyrri undankeppninni. Mikill fjöldi mótmælti þátttöku Íslands í keppninni í ár vegna þátttöku Ísrael. 

Kallað var eftir sniðgöngu en RÚV tilkynnti á meðan Söngvakeppninni stóð að þátttaka Íslands yrði metin í samráði við sigurvegara. Hera Björk var afdráttarlaus að hún myndi vilja fara út og fór hún með sigur af hólmi í Söngvakeppninni. Íslenski hópurinn er nú staddur í Malmö þar sem hann undirbýr keppni. 

Verðið á tónleikamiðanum er fjögur þúsund krónur en Elísabet segir að inn á miðasölusíðunni sé tengill á bæði hjálparstarf Rauða krossins og UNICEF á Íslandi og fólki sé frjálst að styrkja starf þeirra aukalega.

„Þetta snýst bara um samstöðu. Vissulega er það yfirlýsing að vera með þetta á sama tíma [og Eurovision innsk. blm.] en það hefur ekkert með keppandann að gera eða nokkuð annað.“


Tengdar fréttir

Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni

Hera Björk steig í fyrsta skiptið á Eurovision sviðið á sinni fyrstu æfingu í Malmö í gær. Þar mátti sjá Heru í glænýjum gylltum samfestingi.

Hefur ekki lyst á að koma nálægt Eurovision

Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur og Eurovisionaðdáandi mun sniðganga keppnina í ár vegna þátttöku Ísraels. Hann segir tilhugsunin um Eurovision gefa honum kvíðahnút í magann.

Gísli Marteinn lýsir ekki Eurovision í ár

Gísli Marteinn Baldursson mun ekki lýsa Eurovision söngvakeppninni í ár. Ástæðan er framganga Ísraels á Gasa og viðbrögð forsvarsmanna keppninnar við henni og skortur þar á.

Felix víkur og óvissa með Gísla Martein

Felix Bergsson hefur sagt sig frá öllum verkefnum á vegum Ríkisútvarpsins, bæði þeim sem hann hefur sinnt í útvarpi og sömuleiðis í sjónvarpi. Hann verður því ekki fararstjóri íslenska Eurovision hópsins í ár eins og undanfarin ár. Óvíst er hvort Gísli Marteinn Baldursson lýsi keppninni eins og síðustu ár.

Fleiri vildu lag Heru en Bashar til Malmö

Fleiri Íslendingar er óánægðir með framlag Íslands í Eurovision 2024, lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar, en ánægðir, eða rúm fjörutíu prósent. Þó vildu fleiri á sama tíma að lagið yrði framlag Íslands frekar en lagið Wild West með Bashar Murad sem lenti í öðru sæti. Þá vilja flestir að Ísland sitji hjá í Eurovision í ár.

„Með ólíkindum hvernig RÚV ætlar að valta yfir höfunda sigurlagsins“

Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður segist hugsi yfir rétti höfunda til að stjórna því í hvaða tilgangi hugverk þeirra er notað. Hann veltir fyrir sér hvort sæmdarréttur höfunda lagsins Scared of Hights vegi ekki eitthvað þegar ákvörðun um þátttöku í Eurovision var tekin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×