Innlent

Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá komu herþristanna til Reykjavíkur vorið 2019.
Frá komu herþristanna til Reykjavíkur vorið 2019. KMU

Fimm gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, millilenda á Íslandi á næstu dögum á leið sinni frá Norður-Ameríku til Evrópu. Þar munu þær taka þátt í minningarathöfnum í tilefni þess að 80 ár verða liðin frá innrásinni í Normandí, D-deginum 6. júní 1944.

Von er á fyrstu þremur þristunum til Reykjavíkurflugvallar í kvöld. Tveir þeirra fljúga frá Narsarsuaq á Grænlandi en sá þriðji kemur frá Goose Bay á Labrador. Búist er við að þeir lendi um kvöldmatarleytið, sá fyrsti fyrir klukkan 19 en sá síðasti upp úr klukkan 20.

Á flugfréttasíðunni Fróðleiksmolar um flug má greina tilhlökkun meðal flugáhugamanna. Þar er komu vélanna lýst sem augnakonfekti að vestan. 

Það gerist sífellt fátíðara að svo gömlum flugvélum sé flogið yfir Atlantshafið. Þristarnir eru enda komnir á níræðisaldurinn og þeim fækkar sem tekst að halda flughæfum.

Flugvél sem ber gælunafnið „That's All, Brother" var forystuflugvél innrásarinnar í Normandí. Hún kom til Reykjavíkur í tilefni 75 ára afmælis D-dagsins og núna er aftur von á henni.Egill Aðalsteinsson

Fyrir fimm árum, í tilefni 75 ára afmælis D-dagsins, var boðið upp á sannkallaða þristaveislu á Reykjavíkurflugvelli. Þá höfðu alls fimmtán þristar viðdvöl hér landi á leið sinni yfir Atlantshafið.

Meðal þristanna sem núna er á von á er flugvélin „That’s All, Brother”. Hún leiddi innrásina í Normandí, innrás sem markaði þáttaskil í seinni heimsstyrjöldinni, og líta Bandaríkjamenn á flugvélina sem þjóðardýrgrip.

Fjallað var sérstaklega um komu þeirrar vélar í frétt Stöðvar 2 fyrir fimm árum, sem sjá má hér:

Nánar má fræðast um flugvélarnar og leiðangurinn á heimasíðu samtakanna D-day Squadron.


Tengdar fréttir

Halda upp á afmæli fyrstu stóru flugvélar Íslendinga

Íslenskir flugáhugamenn undirbúa núna afmælisveislu fyrir flugvél. Ein ástsælasta flugvél landsins varð nefnilega áttræð í gær og verður tímamótunum fagnað í Flugsafni Íslands á Akureyri um næstu helgi.

Elsta flugvél sögunnar til að fljúga til Íslands

Þristaveislan mikla er enn í gangi á Reykjavíkurflugvelli en þar lenti nú síðdegis DC 3-öldungur á níræðisaldri sem komst um leið í sögubækur sem elsta flugvél sem flogið hefur til Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×