Skoðun

Menningar­legur og sátt­fús for­seti

Aldís Aðalbjarnardóttir skrifar

Fyrir tæpum 30 árum var viðtal tekið við frú Vigdísi Finnbogadóttur í austurríska dagblaðinu Der Standard. Fyrirsögnin var Móðurmálið og menning eru okkar sterkustu vopn. Blaðamaður spurði Vigdísi hvort svo fámenn þjóð norður við heimskautsbaug gæti haldið sjálfstæði sínu. Vigdís svaraði að hún væri sannfærð um það, svo lengi sem við ættum okkar eigið tungumál sæi hún enga hættu: ,,Móðurmálið heldur þjóð minni saman, það skilgreinir sjálfsmynd okkar og sjálfsþekkingu, ef við töpum því missum við einnig sjálfstæði okkar“.

Mér varð hugsað til þessara orða þegar eitt fyrsta verk ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur var að veita fjármunum í nýja áætlun um máltækni sem var í fyrsta sinn sem verulegum fjármunum er eytt í þjóðtungu okkar utan við hið hefðbundna skólastarf og liststyrki. Annað verkefni þessarar sömu stjórnar var að styðja við bókaútgáfu og ekki þarf það heldur að koma á óvart. Katrín Jakobsdóttir er með MA-próf í íslenskum bókmenntum og allir sem hafa hitt hana vita að hún ann íslenskri menningu.

Katrín var áður menntamálaráðherra kornung að árum og átti sem slík stóran þátt í þeirri umdeildu ákvörðun að Harpa skyldi rísa, ákvörðun sem hefur orðið okkur sem menningarþjóð til mikilla heilla.Hún hefur einnig verið mikill vinur Árnastofnunar og ýmiss konar bókmennta árum saman, ekki aðeins í vinnunni heldur líka í frístundum.

Mér finnst mikilvægt að forseti Íslands þekki íslenska menningu vel, hafi sýnt áhuga á henni löngu fyrir eigið framboð og kunni að tala máli hennar. Það gerði Katrín sem ráðherra og forsætisráðherra og í forsetaembætti fær hún enn betra færi á að sinna þessum þáttum.

Í mörgum ræðum sínum hefur Katrín rætt um heiminn frá sjónarhorni barna en það hafa fáir aðrir stjórnmálamenn gert. Mér finnst gott að vita til þess að æðsti maður þjóðarinnar hafi hæfileika til að horfa á heiminn barnsaugum, sérstaklega þegar í hlut á manneskja sem hefur ítrekað sýnt mjög mikinn styrk í sínum orðum og gerðum. Hún sýnir hverjum þeim sem hún mætir virðingu og hlýju; er traust, staðföst og hefur fallega útgeislun.

Katrín hefur verið stjórnmálamaður í áratugi en hún á sér enga óvini í stjórnmálum og ég hef aldrei heyrt hana hallmæla öðrum stjórnmálamanni, hvorki í ræðu né riti. Hversu margir aðrir hafa verið þessu brenndir?

Þetta mun ráða mínu atkvæði þann 1. júní næstkomandi. Það fer til Katrínar.

Höfundur er með BA-próf í íslensku, kennari og leiðsögumaður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×