Viðskipti innlent

Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman bú­skap

Árni Sæberg skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm

Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 10,7 milljörðum kr. og handbært fé frá rekstri 14 milljörðum króna. Erfið staða í vatnsbúskap fyrirtækisins og skerðingar sökum hennar settu nokkurn svip á afkomu fyrirtækisins á ársfjórðungnum.

Í fréttatilkynningu um uppgjör fyrsta ársfjórðungs segir að fjárhagsstaða Landsvirkjunar hafi aldrei verið betri, eiginfjárhlutfall sé 65,9 prósent og skuldsetning komin niður í 1,3x rekstrarhagnað fyrir afskriftir.

„Rekstur Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi gekk vel miðað við aðstæður. Eftir tvö einstök rekstrarár í sögu fyrirtækisins er afkoman áfram góð,“ er haft eftir Herði Árnasyni, forstjóra Landsvirkjunar.

Hagnaður dróst saman um 29 prósent

Hagnaður af grunnrekstri hafi numið 77,4 milljónum bandaríkjadala á fjórðungnum og minnkað um tæp 29 prósent frá sama tímabili í fyrra. Handbært fé frá rekstri hafi numið 101 milljón dala og dregist saman um tæp þrjátíu prósent. Bæði hagnaður af grunnrekstri og handbært fé frá rekstri hafi þó staðist samanburð við fyrsta ársfjórðung 2022, sem þá var metár.

Vatnsbúskapurinn litar uppgjörið

„Erfið staða í vatnsbúskap fyrirtækisins og skerðingar sökum hennar settu nokkurn svip á afkomu Landsvirkjunar á ársfjórðungnum. Selt magn dróst af þeim sökum saman um 6 prósent frá sama tíma í fyrra. Meðalverð til stórnotenda lækkaði einnig miðað við sama tímabil á síðasta ári. Lækkunina má að mestu rekja til þess að verðtenging við Nordpool-markaðinn í samningi við einn stórnotanda féll niður í lok síðasta árs. Rekstrartekjur á fyrsta fjórðungi drógust saman um 18 prósent miðað við sama tímabil árið 2023,“ er haft eftir Herði.

Áfram batni fjárhagsstaða Landsvirkjunar. Nettó skuldir hafi lækkað um 95 milljónir bandaríkjadala frá áramótum og eiginfjárhlutfall sé hærra en nokkru sinni fyrr í sögu fyrirtækisins, eða 65,9 prósent.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×