Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Nettó 22. febrúar 2024 13:21 Góð geðheilsa skiptir miklu máli til að fólk geti notið sín sem best í daglega lífinu. Þar spila fjölmargir þætti saman, t.d. hollt og gott matarræði. Góð geðheilsa er nauðsynleg til að fólk geti notið sín sem best í daglega lífinu og henni þarf að sinna, rétt eins og þeirri líkamlegu, að mati Helgu Dísar Jakobsdóttur, markaðs- og upplifunarstjóra Nettó.
Hún segir að þess vegna eigi ekki bara að huga að geðheilsunni þegar manni líður illa eða þegar eitthvað bjátar á, heldur hlúa að henni alla daga. Með því móti læri maður líka betur á sjálfið - sem sé alltaf gott. Helga Dís Jakobsdóttir er markaðs- og upplifunarstjóra Nettó. „Okkur líður öllum alls konar og flest könnumst við að hafa átt erfiða daga, vikur, mánuði og stundum jafnvel heilu árin þar sem okkur líður illa á sálinni. Það er mjög ánægjulegt að upplifa þá breytingu sem orðið hefur á síðustu árum á afstöðu til og umræðu um geðheilbrigði. Það er ekki lengur sama krafan um að við hörkum af okkur alla vanlíðan, heldur erum við opnari fyrir umræðu um kvíða og þunglyndi og umburðarlyndari gagnvart þeim sem eru að glíma við þessa kvilla. Þá finnst mér fólk líka vera að tala meira um hvað við getum sjálf gert til að bæta geðheilsuna svona almennt og styrkt sálina,“ segir Helga Dís. Aðalatriðið að fólk hafi val Hún bendir á að það geti verið alls kyns ástæður fyrir því að okkur líður illa og þær geta átt sér upptök innra með okkur eða í umhverfinu, en það sé hægt að gera ýmislegt til að minnka vanlíðan og auka vellíðan. Sérfræðingar bendi á að þeir þættir sem hafi áhrif á geðheilsu séu, fyrir utan erfðir náttúrlega, svefn, hreyfing, mataræði, neysla áfengis og vímuefna, félagslíf, áhugamál svo dæmi séu nefnd. „Við hjá Nettó leggjum áherslu á að mæta sem flestum þörfum viðskiptavina okkar. Hluti af því er að gæta þess að við séum með mikið og fjölbreytt framboð af ferskri, hollri matvöru til að fólk geti auðveldlega fundið hollan mat við sitt hæfi, hvort sem um er að ræða grænkera, grænmetisætur eða alætur. Við erum oft með áhugaverð tilboð á þessum vörum, og má sem dæmi nefna að í janúar vorum við með sérstaka heilsu- og lífstílsdaga í Nettó, þar sem við meðal annars sýnum úrvalið á vörum sem henta fólki sem t.d. vill vörur án viðbætts sykurs eða aðhyllist vegan lífsstíl.“ Hún segir að aðalatriðið sé að fólk hafi val og að það geti gengið að hollari vörum vísum í verslunum Nettó. „Við höfum einnig lagt okkur fram um að vera með gott úrval óáfengra drykkja sem sæma sér vel í hvaða boði sem er, því það er skemmtilegra að sleppa áfenginu þegar maður getur samt fengið sér eitthvað ljúffengt og „böbblí“ með vinunum. Við bjóðum einnig upp á alls konar hollari útgáfur af snarli og nammi og erum með verulega gott úrval af vítamínum og bætiefnum, nokkuð sem við Íslendingar þurfum að vera meðvituð um, sérstaklega í vetrarmyrkrinu.“ Anglamark er norrænt merki sem hefur hefur fengið nafnbótina grænasta vörumerkið í Noregi og Svíþjóð í heil átta ár. Vörurnar eru lífrænar, ofnæmis- og umhverfisvænar og fást aðeins í Nettó og öðrum verslunum Samkaupa. Þá segir Helga Dís að hún sé sérstaklega ánægð með vörulínu Anglamark, sem aðeins fæst í Nettó og öðrum verslunum Samkaupa. „Anglamark er norrænt merki og allar vörur sem seldar eru undir því eru umhverfisvænar og eiga að stuðla að heilbrigðari lífsstíl. Vörumerkið hefur fengið nafnbótina grænasta vörumerkið í Noregi og Svíþjóð í heil átta ár! Vörurnar eru lífrænar, ofnæmis- og umhverfisvænar og í hæsta gæðaflokki, enda lausar við óþörf og skaðleg efni.“ Við erum flóknar verur Hún tekur sérstaklega fram að hún sé alls ekki að halda því fram að með því að borða þennan mat, eða drekka þennan drykk sé hægt að lækna eitt eða neitt. „Manneskjan er flókin vera og alls konar þættir hafa áhrif á líðan okkar, líkamlega og andlega. Ef fólk er að upplifa mikla eða langvarandi andlega vanlíðan ætti það að sjálfsögðu að leita sér hjálpar hjá hæfum sérfræðingi. Ég þekki það bara af eigin reynslu að þegar maður borðar skynsamlega og hefur reglu á svefni og hreyfingu þá líður manni almennt betur en ella. Á álagstímum getur verið skynsamlegt að draga úr eða jafnvel hætta tímabundið að drekka áfengi og gæta þess að líkaminn sé að fá öll þau bætiefni sem hann þarf til að takast á við lífið. Svo má alls ekki gleyma því að rækta sambandið við vini og fjölskyldu – það gefur lífinu svo mikið gildi.“ Hún minnir líka á að þótt maður sé við góða geðheilsu þýði það ekki að lífið sé endalaus dans á rósum og manni líði aldrei illa. „En þegar við pössum upp á okkur, forðumst óhollustu (svona að skynsamlegu marki), hreyfum okkur og knúsum fólkið okkar reglulega fjölgum við góðu dögunum og verðum smám saman betur í stakk búin til að takast á við þá slæmu.“
Geðheilbrigði Heilsa Mest lesið „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Lífið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Steinunn vill fá Ásdísi með sér í „Kynbombuflokkinn“ Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Dóttir Jolie og Pitt vill ekki heita Pitt lengur Lífið „Býr ekki lítil kerling innra með okkur öllum?“ Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Myndaveisla: Sjómannadagurinn í Reykjavík og Gummi Emil í koddaslag Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn „Gerið hjartastuðtækið klárt“ – úrslit í Leikið um landið Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Handgerðir leirpottar fyrir kröfuharða kaupendur Nutrilenk liðbætiefnin breyta öllu á álagstímum „Bannað að hvísla að dómaranum!!“ Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Sjá meira