Krúttlegustu starfsmenn geðdeildar fá ótrúlegasta fólk til að brosa Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 7. apríl 2024 11:28 Mosi og Simbi ásamt eigendum sínum, Ólöfu og Ragnheiði. Mosi var þreyttur eftir annasaman morgun í vinnunni en Simbi er enn í hlutastarfi. Vísir/Sigurjón Sjálfskipaður tveggja kílóa móttökustjóri og ferfættur félagi hans sinna fjölbreyttu meðferðarstarfi á geðdeild Landspítalans. Verkefnin eru allt frá því að veita átröskunarsjúklingum stuðning eftir máltíðir yfir í einstaklingsmiðaðar meðferðir þar sem áherslan er á knús.
Hinn fimm ára gamli Mosi, sem er af tegundinni Maltese, er í eigu Ragnheiðar Eiríksdóttur sem starfar á sérhæfðu meðferðarteymi á göngudeild Kleppsspítala. „Mosi er sjálfskipaður móttökustjóri, hann tekur vel á móti öllum sem koma inn á ganginn hjá okkur. Þar sem við erum eru tvö teymi, það er DAM-teymið og svo átröskunarteymið,“ segir Ragnheiður. Mosi tekur þátt í hópmeðferðar-og einstaklingstarfi en er einnig oft fenginn í sérverkefni. Til dæmis nefnir Ragnheiður að hann sinni mikilvæguhlutverki í matarstuðningi hjá átröskunarteyminu. „Þar að segja, fyrir þá skjólstæðinga sem eru á dagdeild og borða máltíðir þar, þá veitir hann stuðning eftir máltíðirnar. Þá er oft ansi mikil spenna en Mosi kemur þá oft inn í herbergið og bara breytir öllu.“ Þá sé hlutverk hans sérlega mikilvægt í einstaklingsviðtölum. „Það kemur greinilega í ljós þegar það er eitthvað erfitt. Þegar fólk er að upplifa mikla spennu, þjáningu eða tala um erfið mál, þá getur hann virkilega stutt bara með sinni nærveru.“ Þegar fréttastofa leit við var annasamur morgun að baki hjá Mosa þar sem hann tók þátt í hópmeðferðarstarfi auk verkefnis í áfallateymi þar sem hann var með í viðtali. Fær ótrúlegasta fólk til að brosa Það er líka nóg að gera hjá hinum átta mánaða gamla Simba, sem aðlagast nýju starfi vel. „Hann er voðalega ánægður með þetta,“ segir Ólöf Jóna Ævarsdóttir, eigandi Simba. „Honum finnst mjög gaman að hitta fólk og hefur treyst mikið á mannfólk frá því að hann fæddist. Hann er með skarð í vör og gat ekki drukkið hjá mömmu sinni þannig hann er mjög háður mannfólki.“ Ólöf segir hlutverk Simba fyrst og fremst vera að veita gleði. „Fólk er kannski að leggjast inn á sínum erfiðasta tímum en hann fær fólk til að brosa. Það vill knúsa hann, sjá hann og klappa honum. Þannig hefur hann mest áhrif, ótrúlegasta fólk brosir þegar það sér hann, þrátt fyrir mikil veikindi og annað.“ Að sjálfsögðu eiga bæði Mosi og Simbi eigin starfsmannaskírteini enda eru þeir saman í starfshundafélagi og halda reglulega starfsdaga.Vísir/Sigurjón Þrátt fyrir mikla hamingju og smá æsing þegar þeir hittust eru Mosi og Simbi báðir mjög rólegir að eðlisfari, sem Ólöf segir að sé mikilvægur eiginleiki geðhjúkrunarhunds. „Það er svona það sem þeir þurfa helst að hafa, að geta verið í allskonar aðstæðum án þess að verða mjög æstir. Hann er ekki að hlaupa upp að fólki eða glefsa eða neitt svoleiðis.“ Eðli málsins samkvæmt koma oft upp erfiðar og óvæntar aðstæður inni á geðdeild og Ólöf segist því fara mjög varlega með Simba, sem er lítill og viðkvæmur. „Við erum með aðstöðu inn á skrifstofu hjá mér þar sem hann getur verið, og ef það er óróleiki eða hátt spennustig eða annað einhversstaðar hjá okkur þá fer hann til hliðar og tekur ekki þátt í því.“ Reglulegir starfsdagar og margföld stytting vinnuvikunnar Félagarnir bera að sjálfsögðu sérútbúin starfsmannaskírteini og eru saman í starfsmanna, ja eða starfshundafélagi. Þeir halda reglulega starfsdaga þar sem er mikið líf og fjör eins og alltaf þegar þeir koma saman. Simbi er enn sem komið er aðeins í hlutastarfi en Mosi er með meiri viðveru, enda eldri og reyndari. „Hann er ansi mikið á staðnum. En hann er samt bara tvö kíló sem þýðir að hann þolir ekki alveg fullt starf,“ segir Ragnheiður. „Ég reyni nú að hafa hann ekki alla vikuna með mér. Hann þarf að hvíla sig líka og er þessvegna með margfalda styttingu vinnuvikunnar.“
Dýr Geðheilbrigði Landspítalinn Hundar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Fleiri fréttir Arnar Þór ýjar að stofnun nýs stjórnmálaflokks Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju Harmar atvik þar sem konu var sagt að hún væri búin að kjósa Notkun Íslendinga á ADHD-lyfjum þrefaldaðist á tíu árum Fínt að það séu ekki bara „kallaforsetar“ Seinkun á tölum ekki að ástæðulausu Nýr forseti, kjörsókn sú besta í 28 ár og mat kjósenda Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“ Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Sjá meira