Körfubolti

Eigin­­kona Jokic í hjart­­næmu mynd­bandi um þann besta

Sindri Sverrisson skrifar
Nikola Jokic er verðmætastur í NBA-deildinni og mikill fjölskyldumaður en hérna fagnar hann meistaratitlinum í fyrra með eiginkonu sinni og dóttur.
Nikola Jokic er verðmætastur í NBA-deildinni og mikill fjölskyldumaður en hérna fagnar hann meistaratitlinum í fyrra með eiginkonu sinni og dóttur. Getty/AAron Ontiveroz

Serbneski miðherjinn Nikola Jokic var í gær útnefndur verðmætasti leikmaður (e. MVP) NBA-deildarinnar í körfubolta í þriðja sinn og er kominn í hóp með Larry Bird og Magic Johnson.

Jokic hafði áður verið valinn árin 2021 og 2022 en varð í 2. sæti í kjörinu í fyrra. Hann er aðeins sá níundi í sögunni sem valinn er bestur þrisvar sinnum eða oftar, og óhætt að segja að hann sé kominn í hóp með miklum goðsögnum.

Auk Jokic hafa þeir Larry Bird, Magic Johnson og Moses Malone hlotið verðlaunin þrisvar sinnum hver. Kareem Abdul-Jabbar var valinn sex sinnum, Michael Jordan og Bill Russell fimm sinnum, og Wilt Chamberlain og LeBron James fjórum sinnum.

„Þetta er sérstök stund sem ég á eflaust eftir að muna alla mína ævi,“ sagði Jokic sem er 29 ára gamall. „Þetta er eitthvað til að njóta eftir að ferlinum lýkur,“ bætti hann við.

Eiginkona hans, Natalija, talar inn á afar hjartnæmt myndband í tilefni verðlaunanna þar sem farið er yfir það hvernig Jokic hefur nú tekist það sem enginn bjóst við, og um leið verið frábær fjölskyldumaður.

Shai Gilgeous-Alexander úr Oklahoma City Thunder varð í 2. sæti að þessu sinni og Luka Doncic úr Dallas Mavericks í 3. sæti.

Jokic hefur að meðaltali skorað 26,4 stig í leik með Denver Nuggets í vetur, tekið 12,4 fráköst og átt níu stoðsendingar. Hann hefur 25 sinnum náð þrefaldri tvennu í leik.

Denver endaði í 2. sæti vesturdeildarinnar en titilvörn liðsins í úrslitakeppninni gengur ekki vel sem stendur. Liðið er 2-0 undir gegn Minnesota Timberwolves í undanúrslitum vesturdeildarinnar.

Brunson hristi af sér meiðsli og Knicks unnu aftur

Í undanúrslitum austurdeildarinnar tókst New York Knicks að komast í 2-0 gegn Indiana Pacers með 130-121 sigri.

Jalen Brunson varð að fara af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla í fæti, þegar New York var 24-17 yfir, og Indiana komst í 73-63 áður en Brunson sneri aftur inn á. Hann endaði með 24 stig í leiknum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×