Enski boltinn

Rodri gagn­rýnir hugar­far Arsenal manna: Þar liggur munurinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rodri stillir sér upp með Englandsbikarinn og við hlið Kevin De Bruyne. Margir telja að þessir tveir séu aðalástæðan fyrir ótrúlegu gengi City liðsins undanfarin fjögur tímabil.
Rodri stillir sér upp með Englandsbikarinn og við hlið Kevin De Bruyne. Margir telja að þessir tveir séu aðalástæðan fyrir ótrúlegu gengi City liðsins undanfarin fjögur tímabil. Getty/Alex Livesey

Annað árið í röð þá hafði Manchester City betur í baráttunni við Arsenal um Englandsmeistaratitilinn. City hefur unnið deildina fjögur ár í röð og í bæði skiptin tekið fram úr Arsenal á lokasprettinum.

Eftir að sigurinn var í höfn í gær þá kom spænski miðjumaðurinn Rodri í sjónvarpsviðtal. Hann hefur ekki tapað leik í meira en ár og leikurinn í gær var fimmtugasti leikur hans í röð í ensku úrvalsdeildinni án þess að tapa.

Rodri hefur verið lykilmaður í fjórum Englandsmeistaratitlum City manna í röð. Rodri er ekki í nokkrum vafa hvar skilur á milli Manchester City og hinna liðanna í deildinni.

„Ef ég segi alveg eins og er þá það hérna uppi. Það er hugarfarið,“ sagði Rodri í viðtali við Optus Sport og benti á höfuðið sitt.

„Arsenal átti líka skilið að vinna deildina. Þeir áttu ótrúlegt tímabil en þarna lá munurinn á liðunum,“ sagði Rodri.

Rodri nefndi sérstaklega leik liðanna í Manchester í mars. Það var leikur sem endaði með markalausu jafntefli og bauð ekki upp á miklan sóknarleik hjá Arsenal mönnum.

„Þegar ég sá þá koma hingað þá sagði ég: Þessir gæjar vilja ekki vinna okkur. Þeir eru bara að reyna að ná jafntefli,“ sagði Rodri.

„Ef þið gefið okkur eitt stig þá munum við vinna sjö til átta síðustu leikina, jafnvel þótt að það sé erfitt. Þetta snýst allt um hugarfarið,“ sagði Rodri.

Það er allt í lagi að taka það fram að Manchester City náði hvorki að fagna sigri á móti Arsenal né Liverpool á þessu tímabili, liðunum fyrir neðan þá í töflunni. Þeir unnu aftur á móti 28 af hinum 34 leikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×