„Eins og verstu unglingar í sleepover“ Rakel Orradóttir, markþjálfi og áhrifavaldur, og Rannver Sigurjónsson kírópraktor kynntust fyrir fjórum árum í gegnum Instagram þegar Rakel fór að fylgja honum á miðlinum. Eftir fyrsta stefnumótið kviknaði ástin á milli þeirra. Síðan þá hafa þau verið óaðskiljanleg. Makamál 8.5.2024 07:00
„Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Elín Björg Björnsdóttir, athafnakona og annar eigandi fataverslunarinnar FOU22, og eiginmaður hennar Christian Bruhn kynntust fyrir rúmum áratug á stefnumótaforritinu Tinder. Ástin kviknaði stuttu síðar þegar þau hittust á skemmtistaðnum Bakken í miðborg Kaupmannahafnar. Makamál 28.4.2024 20:00
„Við eigum ekki hvor aðra heldur veljum við hvor aðra“ Eva Jenný Þorsteinsdóttir myndlistakona og Elísabet Blöndal ljósmyndari kynntust árið 2012 en leiðir þeirra lágu þó ekki saman fyrr en um tveimur árum síðar. Síðan þá hafa þær trúlofað sig, gengið í hjónaband og eignast saman tvö börn, þau Árna Styrmi og Kolfinnu. Makamál 14.4.2024 08:01
Rekin úr píanókennslu, menntaskóla og Ljósmyndaskólanum Listakonan og leikstjórinn Anna Maggý lítur björtum augum á framtíðina og nýja árið sem mun einkennast af skemmtilegum verkefnum, ferðalögum og leit að fljúgandi furðuhlutum (e.UFO hunt). Makamál 20.2.2024 21:04
Fyrsti kossinn yfir stærðfræðibókunum Linda Benediktsdóttir, uppskriftahöfundur og matgæðingur, og eiginmaður hennar Ragnar Einarsson, kynntust á skólabekk í Menntaskólanum við Sund. Ástin kviknaði þó ekki fyrr en nokkrum árum seinna eða þegar Ragnar bauðst til að aðstoða Lindu fyrir stærðfræðipróf. Makamál 15.2.2024 20:19
„Ég er svakalega einhleyp en hef gift marga“ Hin 27 ára Ingveldur Anna Sigurðardóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fulltrúi sýslumannsins á Suðurlandi, lýsir sér sem skemmtilegri stemmningskonu og sveitatúttu sem er hugfangin af pólitík. Makamál 7.2.2024 21:22
„Ég var farin að hallast að því að það væri mögulega eitthvað að honum“ Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur og talskona jákvæðrar líkamsímyndar kynntist eiginmanni sínum Bassa Ólafssyni, tónlistarmanni og ljósmyndara árið 2008. Erna kveðst muna augnablikið þegar hún sá hann fyrst líkt og það hefði verið í gær. Sannkölluð ást við fyrstu sýn. Makamál 1.2.2024 20:01
„Ég var óvart lagður inn á líknardeild og það talaði enginn ensku“ Leikarinn og húmoristinn Starkaður Pétursson lýsir sjálfum sér sem spjátrungi úr Hafnarfirði í tilvistarkreppu sem finnst ekkert betra en að sitja í heitum potti, hlusta á undarlega tónlist og reyna að koma fólki til að hlæja, með misjöfnum árangri. Makamál 29.1.2024 20:01
Ást er: Segja fjölmiðla minna þau á aldursmuninn Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og raunveruleikastjarna LXS, og sambýlismaður hennar, Enok Jónsson, kynntust fyrir um tveimur árum síðan á skemmtistaðnum Bankastræti Club. Enok hélt upp á tvítugsafmæli sitt á staðnum, sem var á þeim tíma í eigu Birgittu. Makamál 22.1.2024 20:01
Föðurland: „Finnst alltaf jafn ömurlegt þegar þeir fara“ Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson segir erfitt að missa af mikilvægum stundum í lífi sonar síns og stjúpsonar þar sem hann hittir þá aðeins aðra hverja viku. Í lagi hans Farfuglar, sem kemur út á morgun, lýsir hann því hvernig það er að vera „pabbi í hlutastarfi“ og hversu mikið að hann þráir að verja meiri tíma með drengjunum tveimur. Makamál 12.1.2024 07:00
„Er almennt frekar nægjusöm týpa“ Hin 29 ára Katrín Ósk Ásgeirsdóttir lýsir sjálfri sem ævintýragjarnri stemningskonu með stórt hjarta sem nýtur sín best í faðmi fjölskyldu og vina. Hún segist heillast að húmor og heiðarleika í fari anarra en er snúin við á punktinum ef hroki og stælar eru annars vegar. Makamál 9.1.2024 20:00
„Inn gengur hún, Ingunn Lára sjálf, í glæsilegum flegnum rauðum kjól með ljóst hárið liðað“ Ingunn Lára Kristjánsdóttir, TikTok fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu og leikkona, segir gestgjafahlutverkið vera henni í blóð borið og elskar hún fátt meira en að halda góð spilakvöld. Hún lýsir sjálfri sér sem algjörri Pollýönnu sem er uppfull af þekkingu um textasmíð tónlistarkonunnar Talyor Swift og Ólafar ríku frá Skarði. Makamál 1.12.2023 20:46
Fyndin, fiðrildi og flugfreyja Flugfreyjan Anna Guðný Ingvarsdóttir lýsir sjálfri sér sem fiðrildi, stemmningskonu með stórt hjarta sem elskar ferðalög, tísku og allt sem viðkemur húðumhirðu og förðun. Makamál 27.11.2023 20:01
„Hún sá mig fyrst í Idolinu“ Söngkennarinn og Idolstjarnan Kjalar Martinsson Kollmar og kærastan hans, Metta Sigurrós Eyjólfsdóttir sálfræðinemi kynntust í gegnum samfélagsmiðla í kjölfar Idol-keppninnar í vetur. Kjalar söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar og hafnaði í öðru sæti. Makamál 23.11.2023 20:00
Safnar karakterum í skúffuna Söngkonan Silva Þórðardóttir segir listann af áhugamálum sínum endalausan. Samhliða því að syngja og kenna söng safnar Silva að eigin sögn karakterum í skúffuna sína. Hún lýsir sér sem ómannglöggum introvert en stefnir þó á að halda nokkra jólatónleika yfir aðventuhátíðina. Makamál 21.11.2023 20:01
„Vissum bæði að það myndi gerast um leið og við sáum hvort annað fyrst“ Söngkonan og Idolstjarnan Beatriz Aleixo, betur þekkt sem Bía, fann ástina í örmum smiðsins, Kolbeins Egils Þrastarsonar, fyrir rúmu ári. Fyrsti kossinn átti sér stað á dansgólfinu sama kvöld og þau kynntust. Makamál 21.11.2023 07:01
„Falleg, fluggáfuð og fáránlega fyndin“ Júlía Margrét Einarsdóttir, rithöfundur og eigandi Jónasar von Kattakaffihús, svo fátt eitt sé nefnt, lýsir sér sem marsmelló-gothara sem elskar blúndur og mikið bling. Hún er mikil kattakona en segist dýrka öll dýr meira en flest fólk. Makamál 14.11.2023 20:01
„Mér fannst hann fallegastur í heimi“ Íris Ann og Lucas Keller kynntust á Ítalíu fyrir sextán árum. Þau hafa síðan þá eignast tvo börn og rekið vinsælan veitingastað í áratug. Makamál 13.11.2023 20:00
„Við erum ómögulegir án hvor annars“ Þeir Jafet Máni og Rúnar kynntust fyrir tilviljun í gegnum Instagram. Tveimur árum síðar búa þeir saman í fallegri íbúð í miðbæ Reykjavíkur. Eftir að hafa hist í fyrsta skipti segir Jafet það aldrei hafa verið spurning. Þeir vildu alltaf verða saman. Makamál 7.11.2023 06:01
„Mér finnst óléttir líkamar það fallegasta sem ég sé“ Hin lífsglaða ofurkona Sylvía Briem Friðjónsdóttir og Emil Þór Jóhannsson unnusti hennar eiga von á sínu þriðja barni á næstu vikum. Fyrir eiga þau tvo drengi, Sæmund og Hólmbert. Samhliða móðurhlutverkinu er Sylvía annar hlaðvarpsstjórnandi Normsins, athafnakona með meiru og áhrifavaldur. Makamál 31.10.2023 10:48
„Sniðug, opin, klár og heit“ Hin lífsglaða stemmningskona, Valgerður Anna Einarsdóttir eða Vala, er þrítug kona sem elskar stemmningu og stuð. Hún lýsir sér sem lífskúnstner með breytt áhugasvið. Makamál 29.10.2023 20:00
„Mér leið eins og ég gæti sigrað heiminn“ Athafnakonan Alexandra Helga Ívarsdóttir trúði ekki eigin augum þegar hún fékk jákvætt þungunarpróf eftir hún og eiginmaður hennar, Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður, höfðu reynt að eignast barn í sex ár. Loksins kom lítil stúlka. Makamál 25.10.2023 09:37
Sambandið algjör ástarbomba Ísdrottningin og fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir og athafnamaðurinn Þórður Daníel Þórðarson byrjuðu að stinga saman nefjum í upphafi sumars eftir að Ásdís bauð Þórði með sér í ferðalag á Sunny Beach í Búlgaríu. Makamál 17.10.2023 20:01
Einhleypan: „Mjög mikill sökker fyrir vondu raunveruleikasjónvarpi“ Tónlistarmaðurinn og förðunarfræðingurinn Úlfar Viktor Björnsson er forvitinn Grafarvogsbúi sem segist elska tónlist, tísku og trönuber. Makamál 16.10.2023 20:00