Viðskipti erlent

Kickstarter safnar 113 milljörðum

Snærós Sindradóttir skrifar
Björk Guðmundsdóttir er ein þeirra íslensku listamanna sem hafa nýtt sér þjónustu Kickstarter
Björk Guðmundsdóttir er ein þeirra íslensku listamanna sem hafa nýtt sér þjónustu Kickstarter Mynd/ AFP
Vefsíðan Kickstarter.com náði í dag merkum áfanga þegar tekist hafði að safna einni billjón Bandaríkjadala, eða ríflega 113 milljörðum íslenskra króna, frá notendum síðunnar. Markmið vefsíðunnar er að fjármagna hin ýmsu verkefni  með beinni aðkomu neytenda í stað stuðnings fárra fjársterkra aðila. Tæplega sex milljónir manna standa að baki framlögunum .

Vefsíðan byggir á svokallaðri fjölda fjármögnun og svipar til vefsíðunnar KarolinaFund.com en í gegnum þá vefsíðu tókst m.a Sirkus Íslands að fjármagna kaup á sirkustjaldi síðastliðið sumar. Fjöldi íslenskra hugmyndasmiða hafa nýtt sér fjölda fjármagnanir með góðum árangri.

Hinir 113 milljarðar hafa ekki runnið beint í gegnum síðuna því um er að ræða heildartölu allra framlaga, þar með talið verkefni sem ekki hafa fengið lágmarks fjármögnun. Ríflega 56 prósent verkefna sem hefja fjármögnun hjá Kickstarter ná ekki lágmarks fjárþörf sinni fyrir tilsettan tíma. Rannsóknir sýna jafnframt að aðeins þriðjungur þeirra verkefna sem ná lágmarki sínu koma til framkvæmdar

Fréttir af áfangasigri Kickstarter koma í kjölfarið á fréttum þess efnis að hakkarar hafi reynt að komast yfir viðkvæmar persónuupplýsingar hjá notendum síðunnar. Talsmenn vefsíðunnar fullyrtu að engar kreditkortaupplýsingar hefðu komist í hendur óprúttinna aðila. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×