Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. apríl 2024 10:00 James Einar skoðar fjölbreytta flóru bíla í fjórðu seríu af Tork gaurnum og í þetta skiptið mæta til hans ýmsir gestir á Íslandi sem og erlendis. James Einar Becker er mættur í fjórða skiptið á skjáinn á Vísi með bílaþættina Tork gaurinn. James segir nýju seríuna verða sérlega skemmtilega þar sem hann prófar ýmsa nýja hluti og bregður sér oft til útlanda að skoða ýmsa ólíka bíla. „
Svo fæ ég einn af þessum sextíu forsetaframbjóðendum til þess að velja forsetabílinn ef þau verða kosin í þætti þar sem ég reyni að selja þeim ákveðinn bíl,“ segir James. Í þáttunum prófar James Einar Becker, betur þekktur sem Tork gaurinn, alls kyns bíla og lýsir fyrir áhorfendum kostum og göllum. Þættirnir eru sýndir á Vísi á miðvikudögum. Í fyrsta þættinum skoðar James nýjan Volvo EX 30 þegar hann er frumsýndur í Barselóna. „Ég verð mikið á frumsýningum þar sem verið er að sýna glænýja bíla, meðal annars á Spáni,“ segir James sem viðurkennir að hann njóti þáttagerðarinnar í botn. James er markaðsstjóri Háskólans á Bifröst og mætir í einum þáttanna á sérlega glæsilegum Benz á verðlaunahátíðina Lúðurinn þar sem hans teymi vann óvænt til verðlauna. „Ég hélt í raun að við myndum aldrei vinna og hafði heitið því að næst kæmi ég á Audi. Þannig ég virka kannski frekar hrokafullur í þeim þætti upp á það að gera, ég var mjög stóryrtur áður en athöfnin fór í gang,“ segir James hlæjandi. Hann segir öllu máli skipta að skoða fjölbreytta bíla. Þannig muni hann skoða venjulega bíla í bland við einstaka og rándýra bíla. Áhuginn á bílum hafi óhjákvæmilega aukist undanfarin ár með tilkomu rafbíla inn á markaðinn. „Fólk er að pæla meira í þessu og framleiðendur að keppast við að vekja athygli með ýmsum hætti þegar þeir gera nýja bíla og reyna þannig að grípa fyrirsagnir,“ segir James. Hann nefnir sem dæmi að engin afturrúða sé að finna í nýjum Polestar og þá sé Volvo EX30 sem skoðaður er í fyrsta þættinum einkar hraðskreiður. „Þetta er venjulegur fjölskyldubíll en er 3,6 sekúndur frá núll upp í hundrað. Sem þjónar náttúrulega engum tilgangi öðrum en þeim að vekja athygli,“ segir James hlæjandi.
Tork gaur Bílar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Ef ekkert breytist þá erum við að fara á hausinn“ Innlent Nemandinn ákærður fyrir tilraun til manndráps Innlent Fjóla felldi hreinan meirihluta Innlent Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Innlent Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Erlent Ók af vettvangi banaslyss og hefur aldrei fundist Innlent Jón sendir valgreiðslukröfur í heimabanka stuðningsmanna sinna Innlent Enginn axli ábyrgð á mistökum sem leiddu til andláts ungra barna Innlent Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Erlent Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Erlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín Sjá meira