Körfubolti

Styrmir og fé­lagar komnir í sumar­frí

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Styrmir Snær Þrastarson og félagar féllu úr leik í kvöld.
Styrmir Snær Þrastarson og félagar féllu úr leik í kvöld. Vísir/Bára

Styrmir Snær Þrastarson og félagar í Belfius Mons eru komnir í sumarfrí eftir tap fyrir Antwerp Giants í kvöld, 71-86.

Risarnir frá Antwerp unnu einvígi liðanna í átta liða úrslitum um belgíska meistaratitilinn, 2-0.

Styrmir stóð fyrir sínu í leiknum í kvöld. Hann skoraði tólf stig, tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Styrmir hitti úr fimm af tíu skotum sínum í leiknum.

Jón Axel Guðmundsson og samherjar hans í Alicante töpuðu fyrir San Pablo Burgos, 73-83, í lokamumferð spænsku B-deildarinnar. Alicante endaði í 7. sæti og fer í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.

Jón Axel skoraði fimm stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×