Körfubolti

Kefla­víkur­konur hafa aldrei tapað odda­leik á heima­velli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birna Benónýsdóttir og félagar hennar í Keflavíkurliðinu eru á heimavelli í kvöld og það hefur reynst liðinu vel í oddaleikjum í úrslitakeppni.
Birna Benónýsdóttir og félagar hennar í Keflavíkurliðinu eru á heimavelli í kvöld og það hefur reynst liðinu vel í oddaleikjum í úrslitakeppni. Vísir/Hulda Margrét

Augun verða á Blue höllinni í Keflavík í kvöld þar sem deildar- og bikarmeistarar Keflavíkur taka á móti ungu liði Stjörnunnar í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta.

Njarðvíkurkonur unnu 3-0 sigur á Grindavík í sínu undanúrslitaeinvígi og bíða nú eftir að komast að því hverjir verða mótherjarnir í lokaúrslitunum.

Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitunin hefst klukkan 18.45 og Subway Körfuboltakvöld gerir síðan upp leikinn strax á eftir.

Það er ekki aðeins reynslan sem er með Keflavíkurkonum í kvöld því sagan er vissulega líka með kvennaliði Keflavíkur við aðstæður sem þessar.

Keflavíkurkonur hafa nefnilega aldrei tapað oddaleik á heimavelli í sögu úrslitakeppni kvenna í körfubolta.

Þetta verður áttundi oddaleikur liðsins á Sunnubrautinni og allir hinir sjö hafa unnist.

Þar á meðal er síðasti oddaleikur Keflavíkurkvenna á heimavelli sem var líka á móti Stjörnunni en reyndar allt öðru Stjörnuliði. Sá leikur var í undanúrslitum úrslitakeppninnar vorið 2019.

Keflavík vann þann leik frekar örugglega, 85-69. Stjörnuliðið var lagt niður en svo endurvakið aftur nokkrum árum síðar.

Liðið er nú byggt upp á mjög ungum leikmönnum sem hafa staðist frábærlega það risapróf í vetur að stimpla sig inn sem eitt besta lið landsins. Liðið er nýliði en komst í efri hlutan og er nú einum sigurleik frá úrslitaeinvíginu.

Sex af þessum sjö oddaleikjum í Keflavík hafa verið í undanúrslitum eins og þessi í kvöld en sá sjöundi var úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn vorið 1994.

Til samanburðar þá hafa karlarnir í Keflavík spilað tuttugu oddaleiki á heimavelli, unnið fimmtán þeirra og tapað fimm.

  • Oddaleikir Keflavíkurkvenna á heimavelli í sögu úrslitakeppninnar:
  • Undanúrslit 1993: 59-56 sigur á Grindavík
  • Lokaúrslit 1994: 68-58 sigur á KR
  • Undanúrslit 2004: 66-62 sigur á Grindavík
  • Undanúrslit 2005: 79-73 sigur á ÍS
  • Undanúrslit 2013: 78-70 sigur á Val
  • Undanúrslit 2017: 80-64 sigur á Skallagrími
  • Undanúrslit 2019: 85-69 sigur á Stjörnunni
  • Undanúrslit 2024: Klukkan 19.15 í kvöld



Fleiri fréttir

Sjá meira


×