Fótbolti

Léku með eftir­nöfn mæðra sinna á treyjunum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Christian Pulisic, eða Christian Harlow, skoraði tvö mörk fyrir AC Milan í sigri gærkvöldsins.
Christian Pulisic, eða Christian Harlow, skoraði tvö mörk fyrir AC Milan í sigri gærkvöldsins. Jonathan Moscrop/Getty Images

Merkingar á treyjum leikmanna AC Milan vöktu líklega athygli margra er liðið mætti Cagliari í ítölsku deildinni í gær.

AC Milan vann öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti Cagliari og með sigrinum gulltryggði liðið sér annað sæti deildarinnar.

Leikmenn liðsins voru þó ekki merktir eins og áður í leiknum, heldur prýddu treyjurnar eftirnöfn mæðra leikmanna liðsins. Félagið gerði þetta af tveimur ástæðum; til að halda upp á mæðradaginn, sem er í dag, og til að vekja athygli á réttinum til persónulegrar auðkenningar (e. personal identity).

Þann 1. júní árið 2022 samþykkti ítalska þingið lög þess efnis að báðir foreldrar hafi rétt á að velja eftirnöfn barna sinna sem hluta af sinni persónulegu auðkenningu.

„Að spila með eftirnöfn mæðra okkar á treyjunum er einstök leið til að heiðra þessar mögnuðu konur sem hafa mótað líf okkar og stutt okkur frá því við komum í heiminn,“ sagði Christian Pulisic, leikmaður AC Milan, en hann skoraði tvö mörk fyrir liðið í sigri gærkvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×