Innlent

Heim­sótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir er í opinberri heimsókn í Lundúnum. Hún hafði nýlokið fundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks, þegar fréttastofa náði tali af honum en hann er í haldi breskra yfirvalda í örygissfangelsinu Belmarsh og þar hefur hann verið frá 2019.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir er í opinberri heimsókn í Lundúnum. Hún hafði nýlokið fundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks, þegar fréttastofa náði tali af honum en hann er í haldi breskra yfirvalda í örygissfangelsinu Belmarsh og þar hefur hann verið frá 2019. Stöð 2/Arnar

Þingflokksformaður Pírata hefur nýlokið fundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks, í Belmarsh-öryggisfangelsinu í Lundúnum. Heimsóknin er liður í skýrslu sem hún er að skrifa fyrir Evrópuráðsþingið um kælandi áhrif varðhaldsins á tjáningarfrelsi í álfunni og þá verður kannað hvort Assange uppfylli skilyrði um að teljast pólitískur fangi.

Það var í fyrra sem Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, lagði til að ráðist yrði í gerð skýrslunnar og Evrópuráðsþingið samþykkti. Skýrslan ber yfirskiftina "Varðhaldið á Julian Assange og kælandi áhrif þess á vernd mannréttinda í Evrópu" en skýrslan kannar einnig hvort Assange uppfylli skilyrði þess að vera svokallaður samviskufangi. Heimsókn Þórhildar Sunnu í fangelsið er liður í skýrslugerðinni en hún hafði nýlokið heimsókninni þegar fréttastofa náði tali af henni.

„Þetta er alveg augljóslega hámarksöryggisfangelsi hérna í London, Belmarsh-fangelsið og það er töluverð fyrirhöfn að komast inn, þú þarft að skilja eiginlega allt eftir, við fengum að taka með okkur tölvur, það var svona nokkurn veginn það eina, engir símar, engin úr eða neitt þannig og þau taka af manni fingraför hérna og það er mikil pappírsvinna í kringum þetta allt saman.“

Assage hefur verið í haldi í Belmarsh-öryggisfangelsinu í fimm ár án sakfellingar en Bandaríkin vilja að Bretar framselji hann svo hægt sé að rétta yfir honum vegna ákæru fyrir brot á njósnalögum. Assange sjálfur segir, með varðhaldinu, vegið að fjölmiðlafrelsi og vernd uppljóstrara.

Vildi hann koma á framfæri einhverjum skilaboðum?

„Já, hann var með skilaboð. Við ætlum nú að gefa það út í yfirlýsingu Evrópuráðið á eftir, seinna í dag, þegar ég lýk þessari opinberu heimsókn. Innanríkisráðuneyti Bretlands hefur ekki virt okkur viðlits og ekki svarað okkur hérna í Evrópuráðinu. Ég er ennþá að reyna að fá þá til þess að hitta mig til að tala um þetta mál en opinbera heimsóknin lýkur á eftir og þá gefum við út yfirlýsingu og þar er að finna líka skilaboð frá Julian.“

Þórhildur Sunna segir að Assange hafi augljóslega verið þreyttur en í góðu formi miðað við aðstæður.

„Hann hefur hlýja og góða nærveru, Julian Assange, það er gott að tala við hann. Hann er augljóslega mjög upptekinn af þeim málstað sem hann hafði allt frá upphafi þessa ferðalags og það var auðvitað mjög merkilegt að hitta hann og þetta var mikilvægur fundur, að ég tel, ég held að við höfum bæði haft gott af honum.“

Þórhildur hefur líka fundað með eiginkonu Assange og fleirum sem tengjast málinu.

„Í kjölfarið mun ég kynna fyrstu drög eða útlínu af skýrslunni minni á nefndarfundi í París í næstu viku og svo stendur til að halda tvo fundi þar sem við bjóðum sérfræðingum að tjá sig um efni skýrslunnar núna í sumar og svo í haust og svo vonumst við til að geta klárað skýrsluna annað hvort í lok október eða þá í lok janúar á næsta ári.“


Tengdar fréttir

Assange verður ekki framseldur strax

Hæstiréttur í Lundúnum ætlar að gefa yfirvöldum í Bandaríkjunum þriggja vikna frest til að tryggja að Julian Assange njóti stjórnarskrárbundinna réttinda til tjáningarfrelsis. Hann verður ekki framseldur til Bandaríkjanna fyrr en þetta er tryggt. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×