Erlent

„Rúss­nesku lögin“ sam­þykkt í Georgíu

Kjartan Kjartansson skrifar
Mótmælendur við georgíska þinghúsið í Tíblisi í dag. Þeir óttast að nýju lögin verði notuð til þess að kæfa pólitískt andóf gegn stjórnvöldum í landinu.
Mótmælendur við georgíska þinghúsið í Tíblisi í dag. Þeir óttast að nýju lögin verði notuð til þess að kæfa pólitískt andóf gegn stjórnvöldum í landinu. AP/Shakh Aivazov

Georgíska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp í anda rússneskra laga sem hafa verið notuð til þess að bæla niður andóf og þagga niður í fjölmiðlum. Þúsundir manna mótmæltu frumvarpinu við þinghúsið á meðan atkvæðagreiðsla fór fram.

Nýju lögin þvinga félagasamtök og frjálsa fjölmiðla sem fá fimmtung tekna sinna erlendis frá til þess að skilgreina sig sem hagsmunaverði erlendra afla og sæta eftirliti dómsmálaráðuneytisins. Tugir þúsunda manna hafa mótmælt frumvarpinu undanfarnar vikur. Ríkisstjórn landsins hafði áður verið gerð afturreka með sambærilegt frumvarp vegna fjöldamótmæla.

Stjórnarflokkurinn Georgíski draumurinn kom frumvarpinu í gegnum þing í dag. Mikil spenna var í þingsal og kom til ryskinga á milli stjórnarþingmanna og stjórnarandstöðuþingmanna, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Irakli Kobakhidze, forsætisráðherra, sagði í dag að ef ríkisstjórnin kæmi málinu ekki í gegn tapaði Georgía fullveldi sínu. Landið gæti auðveldlega deilt örlögum Úkraínu. Hann skýrði þau ummæli sín ekki frekar.

Salome Zourabichvili, forseti Georgíu, hefur sagst ætla að beita neitunarvaldi á lögin. Það dugar þó skammt því stjórnarflokkurinn getur trompað neitunarvald hennar með annarri atkvæðagreiðslu á þingi.

Georgía hefur stöðu mögulegs umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu. Andstæðingar nýju laganna telja að þau dragi úr möguleikum landsins að fá aðild að sambandinu.


Tengdar fréttir

Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu

Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Georgíu þar sem yfirvöld vinna að því að samþykkja ný og mjög svo umdeild lög. Mótmælendum hefur verið mætt af mikilli hörku og hefur komið átaka í Tíblisi bæði fyrir utan þinghúsið og þar inni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×