Innlent

Áhöfnin á Tý vann frækilegt björgunarafrek

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá björgunaraðgerð áhafnarinnar á varðskipinu Tý í gær.
Frá björgunaraðgerð áhafnarinnar á varðskipinu Tý í gær. lhg.is
Áhöfnin á varðskipinu Tý bjargaði 184 flóttamönnum um borð í varðskipið af tveimur litlum gúmmíbátum djúpt norður af Líbíu í gærkvöldi. Frá þessu er greint á vef Landhelgisgæslunnar en þar kemur fram að 100 flóttamenn hefðu að auki verið ferjaðir af ítölsku varðskipi yfir í Týr til aðhlynningar.

Því eru alls 284 flóttamenn um borð í varðskipinu Tý sem siglir nú áleiðis til Ítalíu og áætlar komu til hafnar í Augasta á Sikiley um miðjan dag í dag.

Um var að ræða 92 karla og 18 konur, þar af ein barnshafandilhg.is
Landhelgisgæslan segir björgunina hafa átt sér stað rétt um kvöldmatarleytið í gær en um borð í bátnum voru 71 karl, tvær konur og eitt barn. Meðan á björgunaraðgerðum stóð barst neyðarkall frá öðrum litlum gúmmíbát. Týr kom á vettvang skömmu seinna og bjargaði þar af litlum gúmmíbát, alls 92 körlum og 18 konum, þar af einni barnshafandi.



Af þeim 284 flóttamönnum sem eru um borð í Tý er nokkrar barnshafandi konur og eru allir sagðir í góðu skjóli innandyra og njóta aðhlynningar varðskipaáhafnarinnar en Landhelgisgæslan segir fólkið þrekað og skelkað eftir að hafa siglt á þessu erfiða hafsvæði á litlum opnum bátum.



Landhelgisgæslan segir fjölda fólks hafa verið bjargað á þessu svæði síðustu daga og svo virðist sem mikið flæði flóttafólks sé nú frá Líbíu áleiðis til Ítalíu. Varðskipið Týr verður áfram við björgunarstörf á þessu svæði á næstunni.

Sjá nánar á vef Landhelgisgæslunnar hér. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×