Innlent

Grunaðir um rán í mið­bænum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Lögreglan rannsakar ránið sem átti sér stað í miðbænum.
Lögreglan rannsakar ránið sem átti sér stað í miðbænum. vísir

Þrír menn eru grunaðir um vopnað rán í miðbænum. Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. 

Frá þessu er greint í tilkynningu lögreglu þar sem atvik dagsins eru skráð. 

Mennirnir tóku „muni“ af manni og voru vopnaðir við verknaðinn. Þeir fóru af vettvangi á bifreið en rannsókninni miðar vel, eins og áður segir. 

Þá var maður handtekinn grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna, auk þess að hafa afskipti af aðila sem er grunaður um vörslu fíkniefna og er eftirlýstur. „Aðilinn reyndi að hlaupa frá lögreglu en var hlaupinn uppi og vistaður í þágu rannsóknar málsins.“

Þá var tilkynnt um þrjá menn í Kópavogi utan við verkstæði að ógna starfsmönnum. „Ekki er vitað hvað mönnunum gekk til en enginn var slasaður eftir athæfið,“ segir í tilkynningu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×