Erlent

Fær­eyingar draga í land með ferðamannaskatt

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Saksun á Straumey.
Frá Saksun á Straumey. Egill Aðalsteinsson

Lögþing Færeyja hefur fallið frá áformum um að leggja á 4.500 króna aðgangseyri, 225 danskar krónur, á alla erlenda ferðamenn sem heimsækja eyjarnar. Í staðinn verður tekið upp gistináttagjald, 20 krónur danskar, um 400 krónur íslenskar, fyrir hverja nótt, þó að hámarki tíu nætur, eða um 4.000 krónur.

Bóndafelag Føroya og Føroya Óðalsfelag fagna stærsta sigrinum en með breytingum á frumvarpi landsstjórnarinnar um sjálfbæra ferðaþjónustu, sem Lögþingið samþykkti eftir 2. umræðu á föstudag, er landeigendum veitt heimild til að heimta hæfilegt gjald af ferðamönnum, þó ekki af Færeyingum, fyrir að ganga um lönd þeirra. Skilyrt er að gjaldið sé fyrir veitta þjónustu, eins og fyrir leiðsögn eða bílastæði.

Í baráttu sinni gegn frumvarpinu fóru bændur meðal annars í mótmælaakstur til Þórshafnar og lögðu skítadreifurum framan við Lögþingið, eins og sjá mátti í frétt Stöðvar 2 á dögunum. Þeir töldu frumvarpið ganga gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að stýra sjálfir aðgengi að eigin jörðum. Dæmi voru um að bændur hefðu upp á eigin spýtur hafið gjaldtöku af ferðamönnum en deilt hefur verið um hvort þeim væri slíkt heimilt. Upphaflegt frumvarp landsstjórnarinnar, um eitt aðgangsgjald ferðamanna að Færeyjum, hefði tekið fyrir slíka sérinnheimtu bænda.

Ferðavinnufelagið, samtök ferðaþjónustunnar í Færeyjum, er mjög ósátt við breytingarnar á frumvarpinu. Félagið telur núgildandi löggjöf ekki leyfa jarðeigendum gjaldtöku en núna verði slíkar heimildir lögfestar. Þá segir Ferðavinnufelagið erfitt í framkvæmd að leyfa Færeyingum ókeypis aðgang en krefja gjald af erlendum ferðamönnum.

Bændur höfðu sigur en mikla athygli vakti þegar þeir fóru í mótmælaakstur að Lögþinginu daginn sem mælt var fyrir frumvarpinu umdeilda. Hér ræða þeir við ráðherrann Høgna Hoydal.Kringvarp Færeyja

Ennfremur sé óvissa um fyrir hverskonar þjónustu bændur megi rukka fyrir. Ferðavinnufelagið spyr hvort það dugi „að vera til taks” eða fyrir að ganga um stíga sem þegar séu til staðar, án þess að krafa sé gerð um að nokkuð sé lagt í þá. Þá sé óvíst hvað teljist „hæfilegt” gjald og hvort það dugi bóndanum að leggja tíu metra langan göngustíg til að rukka fyrir aðgang.

Í umfjöllun atvinnumálanefndar Lögþingsins náðist samkomulag milli stjórnarmeirihlutans og Sambandsflokksins um 26 breytingar, sem í raun umbylta upphaflega frumvarpinu. Fólkaflokkurinn stóð einn að minnihlutaáliti en Jafnaðarflokkurinn, Þjóðveldi og Framsókn mynda landsstjórnina. Fór svo að breytingartillögurnar voru samþykktar með 21 atkvæði gegn 8 en þingmenn Fólkaflokksins greiddu allir atkvæði á móti.

Frá Gásadal, eða Gæsadal, í Vogum.Egill Aðalsteinsson

Gistináttagjaldinu er ætlað að renna í sjóð sem nýta á til endurbóta á ferðamannastöðum. Það verður lagt á alla gististaði, jafnt hótel, gistiheimili, heimagistingu og tjaldstæði. Frumvarpið er nú til þriðju og síðustu umræðu í Lögþinginu en gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. október 2025.


Tengdar fréttir

Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn

Færeyskir bændur efndu til mótmælaaksturs á traktorum til Þórshafnar þegar mælt var fyrir frumvarpi landsstjórnarinnar um að leggja háan aðgangseyri á erlenda ferðamenn. Bændur og landeigendur telja frumvarpið ganga gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að stýra sjálfir aðgengi að eigin landi.

Icelandair flýgur til Færeyja að nýju

Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku.

Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds

Helstu ferðamannastaðir Færeyja voru lokaðir í þrjá daga í síðustu viku vegna viðhalds. Eitthundrað sjálfboðaliðar frá tugum landa unnu á meðan við að lagfæra göngustíga, girðingar og þess háttar, verkefni sem sexþúsund manns úr öllum heimshornum sóttu um að fá að taka þátt í.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×