Vindur talsvert hægari en í gær Hægfara lægð sést nú skammt vestur af landinu og mun suðlægri vindátt því gæta á landinu. Vindurinn verður talsvert hægari en í gær eða yfirleitt á bilinu 5 til 13 metrar á sekúndu. Hvassara við norðurströndina í fyrstu. 20.5.2024 08:18
Íransforseti fórst í þyrluslysinu Ríkisfjölmiðlar í Íran hafa staðfest að Ebrahim Raisi, forseti Írans, sé í hópi þeirra sem hafi farist í þyrluslysi sem varð í norðurhluta landsins í gær. Utanríkisráðherrann Hossein Amir-Abdollahian lét auk hans lífið í slysinu, ásamt nokkrum til viðbótar. 20.5.2024 06:47
Gangast við því að hafa drepið Palestínumenn á strönd eftir birtingu myndskeiðs Ísraelski herinn hefur staðfest að hermenn á þeirra vegum hafi skotið tvo Palestínumenn til bana og sært einn til viðbótar á strönd nærri Gasaborg. Yfirlýsingin kemur eftir birtingu myndskeiðs sem sýnir karlmann falla til jarðar og vinnuvél ýta tveimur líkum út í sandinn. Tveir féllu í árás á tjaldbúðir við spítala á Gasa og stendur til að hefja viðræður um vopnahlé í dag. 31.3.2024 19:01
Snjóbylur setur strik í stærstu skíðahelgi ársins Víða er ófært á Norður- og Austurlandi í dag og þurftu stjórnendur Hlíðarfjalls að loka á einni stærstu skíðahelgi ársins þegar snjóbylur skall á. Þá hafa björgunarsveitir þurft að aðstoða mikinn fjölda ferðalanga. 31.3.2024 15:26
„Það er nóg búið að leggja á okkur fyrir“ Byggingatæknifræðingur úr Grindavík segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Hann segir tjónaskoðun ófullnægjandi og kallar eftir breytingum. 31.3.2024 13:59
Auka sætaframboð til Íslands með breiðþotum Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hyggst auka sætaframboð í flugferðum sínum frá New York til Íslands og notar nú Boeing 767 breiðþotu á leiðinni í stað Boeing 757. Fyrsta þota flugfélagsins þetta árið kom til Keflavíkur frá New York í morgun. Þetta er þrettánda árið sem Delta flýgur milli Íslands og Bandaríkjanna. 31.3.2024 09:44
Gular viðvaranir og versnandi akstursskilyrði Spáð er nokkuð hvassri norðan- og norðaustanátt í dag, víða 13 til 20 metrum á sekúndu og snjókomu eða él, einkum á Norður- og Austurlandi þar sem gul viðvörun verður í gildi. Þurrt að kalla sunnan heiða og bjart veður fram eftir degi, en lítilsháttar snjókoma þar í kvöld. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust yfir daginn syðst. 31.3.2024 08:07
Fóru tómhentir heim frá bensínstöðinni Lögregla hafði afskipti af manni í miðbæ Reykjavíkur í nótt sem er sagður hafa hrækt á dyraverði. Þegar laganna verðir mættu á staðinn neitaði einstaklingurinn að segja til nafns og lét öllum illum látum, að sögn lögreglu. Sá var vistaður í fangageymslu þar til hann var talinn viðræðuhæfur. 31.3.2024 07:33
Jón Gnarr boðar fregnir á þriðjudag Jón Gnarr, listamaður og fyrrverandi borgarstjóri hyggst loks greina frá því á þriðjudag hvort hann muni gefa kost á sér í komandi forsetakosningum. 30.3.2024 14:51
Sárir páskaeggjaleitarar ekki farið með rétt mál Bæjarins Beztu Pylsur, sem sér um páskaeggjaleit í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum gefur lítið fyrir gagnrýni á framkvæmd hennar og segir hana hafa gengið vel. Eggin hafi nær ávallt dugað fram að lokun og rangt að þau hafi eitt sinn verið horfin um hádegisbil. Forstöðukona garðsins segir ungt starfsfólk hafa þurft að þola reiði og skammir að ósekju. 30.3.2024 14:04