Innlent

Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Halla Hrund Logadóttir hefur verið á mikilli siglingu í skoðanakönnunum síðustu vikurnar.
Halla Hrund Logadóttir hefur verið á mikilli siglingu í skoðanakönnunum síðustu vikurnar. Vísir/Vilhelm

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mælist með mest fylgi í nýrri könnun á vegum Maskínu. Hún hefur aukið fylgi sitt um þrjú prósentustig frá síðustu könnun og mælist nú með 29,4 prósenta fylgi. Fylgi Jóns Gnarr heldur áfram að dragast saman og það sama gildir um fylgi Baldurs Þórhallssonar. Ekki er marktækur munur á fylgi Höllu Hrundar og Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra.

Í könnunni sem var framkvæmd fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar var spurt: Hvern af eftirtöldum myndir þú kjósa ef forsetakosningar færu fram á morgun? Könnunin fór fram dagana 22. apríl til 3. maí 2024 og voru svarendur 1.236 talsins.

Flestir sem svöruðu könnuninni, 29,4 prósent, myndu kjósa Höllu Hrund Logadóttur. Næstflestir sögðust munu kjósa Katrínu Jakobsdóttur eða 26,8 prósen og þá mældist Baldur Þórhallsson með tæplega 20 prósenta fylgi. 

Fylgi Jóns Gnarr hefur dregist jafnt og þétt saman frá því að hann mældist með 19,6 prósent í könnun þann 8. apríl. Hann mælist nú með tæp þrettán prósenta fylgi. Aðrir frambjóðendur mælast með undir fimm prósenta fylgi. 

Arnar Þór Jónsson mælist í könnuninni með 4,2 prósenta fylgi, Halla Tómasdóttir 3,7 prósenta fylgi og Ásdís Rán Gunnarsdóttir 1,5 prósenta fylgi. Aðrir mælast með minna en eitt prósenta fylgi.

Fylgi frambjóðenda meðal kynja er nokkuð jafnt nema Baldur er með talsvert meira fylgi meðal kvenna (24,4 prósent) heldur en karla (15,9 prósent). Fylgi Höllu Hrundar og Katrínar er mest hjá fólki yfir sextugu. Jón Gnarr er áfram vinsælastur meðal yngstu kjósendanna, en 25,6 prósent þeirra sem myndu kjósa hann eru á aldrinum 18 til 29 ára. Fylgi Baldurs dreifist nokkuð jafnt á milli aldurshópa. 

Katrín Jakobsdóttir sækir fylgi sitt að langmestu leyti til kjósenda Vinstri grænna eða yfir 80 prósent. Flestir þeir sem myndi kjósa Höllu Hrund myndu kjósa Miðflokkinn ef kosið væri til Alþingis í dag. Þá er stuðningsfólk Baldurs líklegast til að kjósa Pírata. 

Í gær var greint frá því að Katrín Jakobsdóttir væri efst í könnun á vegum Félagsvísindastofunnar. Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem kom út í dag mælist Halla Hrund hinsvegar með langmest fylgi allra forsetaframbjóðenda eða 36 prósent. 


Tengdar fréttir

Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun

Jón Gnarr mælist með umtalsvert minna fylgi í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands en í öðrum könnunum til þessa. Katrín Jakobsdóttir trónir á toppnum í könnuninni en ekki er þó marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×