Innlent

„Ég get ekki annað en sagt satt“

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sumir eiga erfitt með að trúa því að Baldur hafi gleymt því hvernig hann greiddi atkvæði.
Sumir eiga erfitt með að trúa því að Baldur hafi gleymt því hvernig hann greiddi atkvæði. Vísir/Vilhelm

Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segist vera þannig gerður að hann geti ekki sagt ósatt þó það hagnaðist honum pólitískt.

Þetta kom meðal annars fram í pallborðsumræðum þar sem rætt var við Baldur, Katrínu Jakobsdóttur og Höllu Hrund sem þykja sigurstranglegust ef litið er til nýjustu skoðanakannana. Þessi ummæli Baldurs komu í kjölfar þess að hann var spurður út í hvernig hann greiddi atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunum um Icesave á sínum tíma.

„Ég er bara þannig gerður að ég get ekki annað en sagt satt og rétt frá og ég segi ekki ósatt frá þó að það myndi hagnast mér pólitískt. Það er einfaldlega þannig að þegar þessar Icesave umræða var þá var ég ósáttur með allt það ferli. Sérstaklega hvernig staðið var að fyrstu samningunum,“ segir Baldur.

Óviss fram á síðasta dag

Hann segist hafa haft allt á hornum sér gagnvart fyrstu samningunum og verið allt nema sáttur við þá seinni. Hann hafi verið fenginn sem sérfræðingur til að greina kosti og galla samningsins en það hafi málað hann upp sem talsmann hans sem hann tekur fyrir að hafa verið.

„Ég var satt best að segja fram á síðasta dag óviss hvað ég átti að gera. Hvort ég átti að greiða atkvæði með eða skila auðu. Ég get ekki annað en sagt sannleikann og ef ég verð kosinn forseti Íslands mun ég alltaf standa með þjóðinni og ég mun halda áfram að segja alltaf satt,“ segir Baldur.

„Svo fóru menn að deila um þetta á samfélagsmiðlunum eins og gerist og gengur. Sumir hneyksluðust ógurlega. En það var svo gaman að sjá hópinn sem var að velta því fyrir sér: „Ég bara man ekki hvað ég gerði.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×