Lífið

Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Steinunn er leikkona þannig hún getur falið þjáninguna, að mestu.
Steinunn er leikkona þannig hún getur falið þjáninguna, að mestu. Vísir

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi hefur aldrei borðað kjúkling og gæðir sér þess í stað á blómkáli. Steinunn fór eitt sinn út úr húsi og heilsaði hvölum sem kölluðu á hana á bjartri sumarnóttu úr Steingrímsfirði.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í þriðja þætti Af vængjum fram, nýjum skemmtiþætti á Vísi í tilefni af forsetakosningum. Þar setjast forsetaframbjóðendur niður og gæða sér á sífellt sterkari kjúklingavængjum á milli þess sem þeir ræða lífið og tilveruna í einlægu spjalli. Von er á öllum forsetaframbjóðendum í þáttinn næstu vikur.

Klippa: Af vængjum fram - Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Eldsprengja en ekki Firecracker

Í þættinum ræðir Steinunn meðal annars hvers vegna hún býður sig fram. Hún segir það ekki koma Katrínu Jakobsdóttur neitt við. Þá tekur hún sig til og íslenskar heiti sósa sem allar hafa hingað til verið á ensku Steinunni til mikils ama.

Steinunn sýnir húðflúrin sín og ræðir persónulega sögu þeirra. Þá ræðir Steinunn hvað miðaldra konur ættu að borða, teiknimyndina Konung ljónanna og augnablikið sem hún fékk að taka í höndina á Kristjáni Eldjárn.

Hún ræðir gríðarlega langan feril sinn þar sem kennir ýmissa grasa og segir að sér hafi fundist skemmtilegast að vinna á lager. Hún ræðir ástarmál sín og segist hafa átt æðislega kærasta og enn betri eiginmenn. Steinunn hefur sínar skoðanir á því að syngja þjóðsönginn.

„Þessi er verulega heit....,“ segir Steinunn létt í bragði á einum tímapunkti. „En þú veist að ég er leikkona, ég get falið það,“ segir hún og bætir við: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna í beinni útsendingu.“


Tengdar fréttir

Vaknaði í angist alla morgna

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segist á mjög friðsælum og góðum stað í lífinu, eftir áraraðir af kvíða áhyggjum og áfallastreitu. Steinunn, sem er gestur í nýjasta þætti af podcasti Sölva Tryggvasonar, segist hafa lært að dómharka sé tilgangslaus og að þjáning sé eðlilegur hluti af tilverunni.

Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“

Viktor Traustason forsetaframbjóðandi á nokkuð auðvelt með að borða sterkan mat. Hann sýnir einstakt töfrabragð sem hann lærði af götuhundum í Grikklandi og lýsir því hvað honum finnst um að tala um fjölskylduna sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×