Innlent

Mesta kvika frá því að kviku­gangurinn myndaðist

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Svartsengi þar sem kvikusöfnun heldur áfram á stöðugum hraða.
Frá Svartsengi þar sem kvikusöfnun heldur áfram á stöðugum hraða. Vísir/Arnar

Kvikusöfnun heldur stöðugt áfram undir Svartsengi og er nú magn kviku það mesta frá því áður en kvikugangur myndaðist 10. nóvember. Haldi kvikusöfnunin áfram án kvikuhlaups eða eldgoss segir Veðurstofan að huga þurfi að fleiri sviðsmyndum um framhaldið.

Grindavík var rýmd eftir að fimmtán kílómetra langur kvikugangur myndaðist 10. nóvember. Þá er talið að um áttatíu milljón rúmmetrar af kviku hafi farið úr kvikuhólfi. Kvikusöfnun hefur haldið áfram óslitið síðan þá. Að minnsta kosti fimm kvikuhlaup hafa orðið frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina en fjögur þeirra enduðu með eldgosi.

Heildarmagn kviku í hólfinu undir Svartsengi er nú það mesta frá því að kvikugangurinn myndaðist, að því er kemur fram í stöðuuppfærslu á vefsíðu Veðurstofunnar. Alls hafa um sextán milljón rúmmetrar kviku bæst við kvikuhólfið undir Svartsengi frá 16. mars þegar síðasta gos hófst. Þetta er lengsta lota kvikusöfnunar frá því að atburðarásin við Grindavík hófst í október.

Eftir því sem lengra líður án þess að nýtt kvikuhlaup verði í Sundhnúkagígaröðina aukast líkur á að kvika leiti á önnur svæði þar sem jarðskorpan er veik fyrir.

Líklegast þykir að kvika hlaupi aftur úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina. Nokkur óvissa er sögð um hvenær nægilegum þrýstingi verður náð til þess að koma af stað nýju kvikuhlapi og að kvika nái til yfirborðs.

Ólíklegri sviðsmynd er svæðið sunnan fjallsins Þorbjarnar í stóra sigdalnum við Grindavík. Smáskjálftavirkni síðustu daga og vikna hefur meðal annars verið þar. Veðurstofan segir að þar séu veikleikar í jarðskorpunni sem kvika gæti nýtt sér til að ná til yfirborðs. Ætlunin er að safna og vinna úr gögnum næstu daga til að varpa frekara ljósi á þennan möguleika.


Tengdar fréttir

Kvikusöfnunin áfram stöðug

Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur áfram haldist stöðug og eru taldar auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á næstu dögum. Líklegast er að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni og er fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×