Íslenski boltinn

Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akra­nesi

Sindri Sverrisson skrifar
Patrick Pedersen er kominn með fimm mörk í Bestu deildinni í ár, og alls 104 mörk í efstu deild á Íslandi sem er met hjá erlendum leikmanni.
Patrick Pedersen er kominn með fimm mörk í Bestu deildinni í ár, og alls 104 mörk í efstu deild á Íslandi sem er met hjá erlendum leikmanni. vísir/Anton

Viktor Jónsson og Patrick Pedersen eru tveir markahæstu leikmenn Bestu deildar karla í fótbolta og þeir voru báðir á skotskónum í gær þegar tveir leikir fóru fram í sjöttu umferð. Mörkin má nú sjá á Vísi.

Viktor skoraði fyrsta mark ÍA í 3-0 sigrinum gegn Vestra, í nýliðaslagnum á Akranesi, og er nú kominn með sex mörk, flest allra í deildinni. Hann hafði áður mest skorað fimm mörk á einni leiktíð í efstu deild, í reyndar aðeins níu leikjum sumarið 2020, en raðað inn mörkum í næstefstu deild.

Seinni tvö mörk ÍA mætti skrifa á mikinn klaufaskap Vestramanna en Johannes Vall skoraði það fyrra úr aukaspyrnu af löngu færi, án þess að William Eskelinen næði að verja. Síðasta markið kom þegar Guðfinnur Þór Leósson nýtti sér vandræði Vestra við að koma boltanum í burtu, til að skora sitt fyrsta mark í efstu deild.

Mörkin úr leikjum gærdagsins má sjá í þessari frétt úr Sportpakkanum í gærkvöld.

Á N1-vellinum að Hlíðarenda voru Valsmenn sterkari og unnu 3-1 sigur gegn KA. Hólmar Örn Eyjólfsson skoraði fyrsta markið með skalla, eftir aukaspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar, en Hallgrímur Mar Steingrímsson jafnaði metin úr vítaspyrnu á 42. mínútu.

Gylfi fékk tækifæri til að koma Val yfir á nýjan leik úr annarri vítaspyrnu, en Steinþór Már Auðunsson varði frá honum.

Það kom þó ekki að sök fyrir Val því Patrick Pedersen skoraði tvö mörk í seinni hálfleiknum. Þessi markahæsti, erlendi leikmaður í sögu efstu deildar hér á landi hefur þar með skorað 104 mörk, og er næstmarkahæstur í deildinni í ár með fimm mörk, einu færra en fyrrnefndur Viktor.

Toppslagur á dagskrá í kvöld

Sjöttu umferð Bestu deildar lýkur í dag þegar KR tekur á móti HK, Fylkir mætir Breiðabliki og Víkingur og FH mætast svo í toppslag.

Leikirnir verða svo allir gerðir upp í Stúkunni á Stöð 2 Sport annað kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×