Enski boltinn

Havertz: „Verð mesti stuðnings­maður Tottenham í sögunni“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kai Havertz vill sjá Tottenham gera Manchester City grikk á morgun.
Kai Havertz vill sjá Tottenham gera Manchester City grikk á morgun. getty/Michael Regan

Arsenal þarf að vonast til að erkifjendur þeirra í Tottenham geri þeim greiða til að liðið geti orðið Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu ár.

Arsenal tyllti sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 0-1 sigri á Manchester United á Old Trafford í gær.

Arsenal er einu stigi á undan Manchester City sem á tvo leiki eftir. Næsti leikur City er gegn Tottenham á útivelli á morgun og Arsenal verður að vonast eftir að Spurs taki stig af meisturunum.

Þrátt fyrir að grunnt sé á því góða milli Arsenal og Tottenham segir Kai Havertz, leikmaður Skyttanna, að hann muni styðja Spurs á morgun.

„Ég verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni,“ sagði Havertz eftir leikinn gegn United í gær.

„Við verðum það allir! Við vonum það besta,“ bætti Þjóðverjinn við. Hann hefur spilað vel að undanförnu og lagði upp markið gegn United fyrir Leandro Trossard.

Tottenham er í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en gæti náð 4. sætinu með hagstæðum úrslitum í síðustu leikjunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×