Innlent

Var í símanum á 142 kíló­metra hraða áður en hann lést

Árni Sæberg skrifar
Yfirlitsmynd af slysstað.
Yfirlitsmynd af slysstað. Rannsóknarnefnd samgönguslysa

Meginorsök banaslyss á Þrengslavegi í júlí í fyrra var skert athygli við akstur. Við rannsókn slyssins kom í ljós að ökumaður, átján ára karlmaður, notaði farsíma talsvert skömmu fyrir slys til þess að taka upp myndband, taka ljósmyndir og senda skilaboð á meðan hann ók bifreiðinni.

Þetta er niðurstaða Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Í skýrslu nefndarinnar, sem var birt í dag, segir að aðrar orsakir slyssins hafi meðal annars verið of mikill hraði. Samkvæmt meðalhraðaútreikningum skömmu fyrir slysið, byggðum á gögnum úr farsíma ökumanns, hafi bifreiðinni verið ekið á um 114 kílómetra hraða á 3,9 kílómetra löngum kafla á Þrengslavegi. 

Samkvæmt hraðaútreikningi á grundvelli slysaferilsins hafi henni verið ekið á 142 ± 11 kílómetra hraða þegar hún fór út fyrir veg.

Setur út á aðstæður

Sem áður segir varð slysið á Þrengslavegi á Suðurlandi. Í skýrslu nefndarinnar segir að bílnum hafi verið ekið í norðausturátt, farið út fyrir veg hægra megin í mjúkri vinstri beygju og ekið í vegfláa nokkra stund áður en hún endastakkst nokkrum sinnum.

Í skýrslunni segir að á slysstað hafi verið nýlegt malbik á yfirborði vegarins. Hvorki hefði verið lokið við að merkja kantlínur á veginn né hefðu verið fræstar rifflur til hliðar. Þannig hafi ekki verið búið að afmarka breidd akbrautar eða vegaxlir. Búið hafi verið að fræsa rifflur í miðlínu vegarins.

Vísað er í skýrslu Hnits verkfræðistofu þar sem segir að rannsóknir hafi sýnt að þar sem rifflur eru á yfirborði vega fækki slysum ávallt, um allt að sjötíu prósent.

„Sennilegt er að rifflur til hliðar við akreinina hefðu vakið athygli ökumanns áður en bifreiðin fór út fyrir bundna slitlagið, en fram kom við rannsókn slyssins að sennilega var ökumaður ekki með fulla athygli á akstrinum.“

Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að fræsa rifflur í yfirborð vega þar sem aðstæður og tegund bundins slitlags býður upp á slíkt.

Fékk skilaboð rétt fyrir slysið

Í skýrslu nefndarinnar segir að á um sextán mínútna tímabili, fyrir slysið, hafi ökumaðurinn sent nokkur skilaboð úr síma sínum, þar af eitt myndskeið sem tekið var upp á farsímann við aksturinn og tvær ljósmyndir. 

Um 21 sekúndu fyrir sjálfvirkt símtal farsímans í Neyðarlínu, klukkan 08:38:46, hafi ökumanni borist margmiðlunarskilaboð í farsímann. Farsímar af þessari gerð hringi sjálfkrafa í Neyðarlínu tuttugu sekúndum eftir að hann skynjar högg sem kann að gefa til kynna slys. 

„Líklegt er að ökumaðurinn hafi ekki verið með nægjanlega athygli við aksturinn þegar slysið varð.“

Þá segir einnig í skýrslunni að ökumaðurinn hafi ekki verið í bílbelti. Hann hafi kastast um nítján metra frá bílnum og hlotið við það banvæna áverka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×