Fréttir Hafa áhyggjur af hnífaburði grunnskólakrakka Borið hefur á því í skóla-og félagsmiðstöðvastarfi í Kópavogi að unglingar gangi með hníf á sér. Starfsmenn hafa áhyggjur af þessari þróun og foreldrum skólabarna hefur verið sent bréf vegna málsins. Innlent 30.8.2023 21:00 „Fiskarnir bera augljós merki um að vera eldislaxar“ Óttast er að eldislax gangi upp fjölda laxveiðiáa á Norðvesturlandi eftir slysasleppingar úr sjókvíeldum. Hafrannsóknarstofnun segir líklega strokulaxa hafa sést í teljurum í ám og birti í dag mynd af þessum lax sem veiddist í Laugardalsá í síðustu viku og er talinn vera eldislax. Innlent 30.8.2023 20:56 Hinn grunaði á Selfossi laus úr gæsluvarðhaldi Maðurinn sem grunaður er um að hafa banað konu á Selfossi í lok apríl er laus úr gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið dæmdur í farbann til 1. desember næstkomandi. Innlent 30.8.2023 20:22 Hollywood-stjörnur hóta sniðgöngu verði hvalveiðar leyfðar á ný Baltasar Kormákur segir það skelfilegt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað ef verður af sniðgöngu Hollywood-leikara og framleiðenda vegna hvalveiða. Matvælaráðherra kynnir ákvörðun sína á morgun. Ef hún leyfir hvalveiðir aftur ætlar hópur Hollywood leikara ekki að koma með verkefni sín til Íslands. Innlent 30.8.2023 19:01 Segir Vinstri græn hafa gert brotthvarf sitt að skilyrði Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna hafi gert kröfu um það að hann viki úr ríkisstjórn gegn því að verja hann gegn vantrauststillögu sem lögð var fram á þingi í vor. Hann segist ekki ætla að vera meðsekur með Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra í hvalveiðimálinu og telur hana hafa gerst brotlega við lög. Innlent 30.8.2023 18:38 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óskarsverðlaunaleikkonan Hillary Swank er meðal leikara og framleiðenda í Hollywood sem ætla að sniðganga Ísland sem mögulegan tökustað banni íslensk stjórnvöld ekki hvalveiðar til frambúðar. Baltasar Kormákur segir það skelfilegt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað verði af sniðgöngunni. Innlent 30.8.2023 18:01 Ljósleiðarastrengur í sundur Slit urðu á ljósleiðarastreng í Vatnsmýri í Reykjavík og getur það valdið netleysi eða truflunum hjá hluta borgarbúa. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Ljósleiðarans vegna málsins. Innlent 30.8.2023 17:27 Hvorki pirraður nágranni né hrekkjóttur unglingur Listamaðurinn Curver Thoroddsen hefur eignast nýjan vin eftir leystist farsællega úr óvæntri uppákomu á Hamraborgarhátíðinni í Kópavogi. Það sem talið var hafa verið skemmdarverk pirraðs nágranna reyndist hafa verið umsjónarmaður húsnæðisins að vinna vinnuna sína. Innlent 30.8.2023 16:37 Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna. Erlent 30.8.2023 16:24 Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik. Erlent 30.8.2023 15:49 Strokulax Arctic Fish sennilega borist í ár á Vestfjörðum Grunur er um að strokulax frá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish hafi veiðst í nokkrum laxveiðiám á Vestfjörðum að undanförnu. Tvö göt fundust á kví fyrirtækisins í Patreksfirði fyrir rúmri viku. Matvælastofnun segir að sennilega sé ekki um stórt strok að ræða. Innlent 30.8.2023 15:19 Tilkynntum nauðgunum fækkar um 36 prósent Lögreglan skráði tilkynningar um 79 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins 2023, sem samsvarar 36 prósent fækkun frá síðasta ári. Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fækkaði skráðum nauðgunum um tuttugu prósent. Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um þrettán nauðganir á mánuði hjá lögreglunni. Innlent 30.8.2023 15:06 Svara ekki hvort starfsfólki ráðuneyta fækki Óvíst er hvort að starfsfólki ráðuneyta fækki í niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Rúmlega 700 manns starfa nú í ráðuneytunum, sem hafa aldrei verið fleiri og allir ráðherrar komnir með tvo aðstoðarmenn. Innlent 30.8.2023 14:32 Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit. Erlent 30.8.2023 14:04 Svandís greinir frá ákvörðun um hvalveiðar á Egilsstöðum Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ætlar að greina frá ákvörðun sinni varðandi framhald hvalveiða að loknum ríkisstjórnarfundi á morgun. Þetta staðfestir Dúi Landmark upplýsingafulltrúi í matvælaráðuneytinu. Um er að ræða sumarfund ríkisstjórnarinnar sem fer fram á Egilsstöðum. Innlent 30.8.2023 14:03 Á rétt á upplýsingum varðandi slysið sem varð syni hans að bana Bandarískur faðir manns sem lést í flugslysi á Þingvallavatni í febrúar 2022 á rétt á upplýsingum um flugmann vélarinnar og fyrirtæki hans frá Samgöngustofu. Þetta úrskurðaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál sem vísaði málinu aftur til stofnunarinnar sem hafði áður hafnað beiðni föðurins. Innlent 30.8.2023 13:43 Má ekki heita Annamaría Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um leyfi til að heita Annamaría að eiginnafni. Nefndin hefur hins vegar samþykkt eiginnöfnin Konstantín, Özur, Aðaley og fleiri. Innlent 30.8.2023 13:15 Ríflega 100 veiktust í fjórum matartengdum hópsýkingum árið 2022 Fjórar stórar matartengdar hópsýkingar voru tilkynntar til sóttvarnalæknis árið 2022. Tvær voru af völdum nóróveiru, ein af völdum E. coli (EPEC) en í einu tilvikinu er orsakavaldurinn enn óþekktur. Innlent 30.8.2023 12:48 Leita allra leiða til að halda dagskrá í óveðri Forsvarsmenn bæjarhátíðarinnar Ljósanætur í Reykjanesbæ leita nú allra leiða til að halda hátíðina samkvæmt dagskrá. Aftakaveðri er spáð næstu helgi þegar hátíðin fer fram. Innlent 30.8.2023 12:45 Segir aukningu á lekanda vera áhyggjuefni Mikil aukning hefur orðið á greindum tilfellum lekanda hér á landi og segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir það vera áhyggjuefni. Á síðasta ári greindust 158 einstaklingar með lekanda samkvæmt ársskýrslu sóttvarna fyrir síðasta ár. Innlent 30.8.2023 12:25 Esjan laus við snjó í fyrsta skipti í fjögur ár Snjóskafli í Gunnlaugsskarði í Esjunni er horfinn í fyrsta skipti frá árinu 2019. Sumur eru sögð þurfa að vera óvenju hlý til þess að skaflinn bráðni alveg. Innlent 30.8.2023 12:20 Hermenn handtóku forseta Gabon Hópur hermanna í Gabon segist hafa handsamað Ali Bongo, forseta landsins. Þrátt fyrir að Bongo hafi kallað eftir mótmælum vegna handtöku hans virðist sem íbúar landsins hafi tekið handtökunni fagnandi. Erlent 30.8.2023 12:14 Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna. Erlent 30.8.2023 12:07 Hádegisfréttir Bylgjunnar Hugsanlegt er að Skaftárhlaup hafi náð hámarki. Að sögn bónda á svæðinu er vatnsmagnið minna nú en oft áður og heimafólk ekki uggandi yfir stöðunni eins og er. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á slaginu tólf. Innlent 30.8.2023 11:59 Hugsanlegt að Skaftárhlaup hafi náð hámarki Sérfræðingar hjá Veðurstofu Íslands funda í dag og kanna hvort flóðatoppnum í Skaftárhlaupi sem hófst í gær sé náð eða hvort hann geti farið hækkandi. Að sögn bónda á svæðinu er vatnsmagnið minna nú en oft áður og heimafólk ekki uggandi yfir stöðunni eins og er. Innlent 30.8.2023 11:16 Gul viðvörun um helgina Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á stóru hluta landsins á föstudagskvöld og fram eftir degi á laugardaginn. Vissara er fyrir fólk að hugsa að trampólínum í görðum víða um land. Veður 30.8.2023 11:15 Skertur opnunartími sundlauga í Árborg tekur gildi Opnunartími Sundhallar Selfoss styttist á föstudaginn þegar aðhaldsaðgerðir sveitarstjórnar Árborgar taka gildi. Sundlaugin á Stokkseyri verður lokuð frá nóvember til mars. Formaður bæjarráðs segist skilja vel að íbúar Árborgar hafi misjafnar skoðanir á aðgerðunum. Innlent 30.8.2023 11:08 Vitni að dýraháska hafi tilkynningar- og hjálparskyldu Héraðsdýralæknir hjá Matvælastofnun segir að fólk hafi tilkynningar- og hjálparskyldu þegar það sér dýr í háska. Tilkynning hefur borist um kindadauðann í Vatnsfirði. Innlent 30.8.2023 11:04 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Harðir bardagar í suðri Úkraínskir hermenn hafa náð tiltölulega miklum árangri í Sapórisjíahéraði í suðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum og vikum. Svo virðist sem aukinn hraði hafi færst í framsókn Úkraínumanna nærri bænum Robotyne en Rússar hafa sent sínar bestu hersveitir á svæðið til að stöðva sóknina. Erlent 30.8.2023 10:56 Lokanir á fjallvegum vegna hlaup í Skaftá Lögreglan á Suðurlandi vekur athygli á lokunum á fjallvegum vegna yfirstandandi hlaups í Skaftá. Í tilkynningu segir að staðan sé reglulega metin með sérfræðingum Veðurstofu Íslands og Almannavörnum. Innlent 30.8.2023 10:40 « ‹ 331 332 333 334 ›
Hafa áhyggjur af hnífaburði grunnskólakrakka Borið hefur á því í skóla-og félagsmiðstöðvastarfi í Kópavogi að unglingar gangi með hníf á sér. Starfsmenn hafa áhyggjur af þessari þróun og foreldrum skólabarna hefur verið sent bréf vegna málsins. Innlent 30.8.2023 21:00
„Fiskarnir bera augljós merki um að vera eldislaxar“ Óttast er að eldislax gangi upp fjölda laxveiðiáa á Norðvesturlandi eftir slysasleppingar úr sjókvíeldum. Hafrannsóknarstofnun segir líklega strokulaxa hafa sést í teljurum í ám og birti í dag mynd af þessum lax sem veiddist í Laugardalsá í síðustu viku og er talinn vera eldislax. Innlent 30.8.2023 20:56
Hinn grunaði á Selfossi laus úr gæsluvarðhaldi Maðurinn sem grunaður er um að hafa banað konu á Selfossi í lok apríl er laus úr gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið dæmdur í farbann til 1. desember næstkomandi. Innlent 30.8.2023 20:22
Hollywood-stjörnur hóta sniðgöngu verði hvalveiðar leyfðar á ný Baltasar Kormákur segir það skelfilegt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað ef verður af sniðgöngu Hollywood-leikara og framleiðenda vegna hvalveiða. Matvælaráðherra kynnir ákvörðun sína á morgun. Ef hún leyfir hvalveiðir aftur ætlar hópur Hollywood leikara ekki að koma með verkefni sín til Íslands. Innlent 30.8.2023 19:01
Segir Vinstri græn hafa gert brotthvarf sitt að skilyrði Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna hafi gert kröfu um það að hann viki úr ríkisstjórn gegn því að verja hann gegn vantrauststillögu sem lögð var fram á þingi í vor. Hann segist ekki ætla að vera meðsekur með Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra í hvalveiðimálinu og telur hana hafa gerst brotlega við lög. Innlent 30.8.2023 18:38
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óskarsverðlaunaleikkonan Hillary Swank er meðal leikara og framleiðenda í Hollywood sem ætla að sniðganga Ísland sem mögulegan tökustað banni íslensk stjórnvöld ekki hvalveiðar til frambúðar. Baltasar Kormákur segir það skelfilegt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað verði af sniðgöngunni. Innlent 30.8.2023 18:01
Ljósleiðarastrengur í sundur Slit urðu á ljósleiðarastreng í Vatnsmýri í Reykjavík og getur það valdið netleysi eða truflunum hjá hluta borgarbúa. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Ljósleiðarans vegna málsins. Innlent 30.8.2023 17:27
Hvorki pirraður nágranni né hrekkjóttur unglingur Listamaðurinn Curver Thoroddsen hefur eignast nýjan vin eftir leystist farsællega úr óvæntri uppákomu á Hamraborgarhátíðinni í Kópavogi. Það sem talið var hafa verið skemmdarverk pirraðs nágranna reyndist hafa verið umsjónarmaður húsnæðisins að vinna vinnuna sína. Innlent 30.8.2023 16:37
Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna. Erlent 30.8.2023 16:24
Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik. Erlent 30.8.2023 15:49
Strokulax Arctic Fish sennilega borist í ár á Vestfjörðum Grunur er um að strokulax frá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish hafi veiðst í nokkrum laxveiðiám á Vestfjörðum að undanförnu. Tvö göt fundust á kví fyrirtækisins í Patreksfirði fyrir rúmri viku. Matvælastofnun segir að sennilega sé ekki um stórt strok að ræða. Innlent 30.8.2023 15:19
Tilkynntum nauðgunum fækkar um 36 prósent Lögreglan skráði tilkynningar um 79 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins 2023, sem samsvarar 36 prósent fækkun frá síðasta ári. Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fækkaði skráðum nauðgunum um tuttugu prósent. Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um þrettán nauðganir á mánuði hjá lögreglunni. Innlent 30.8.2023 15:06
Svara ekki hvort starfsfólki ráðuneyta fækki Óvíst er hvort að starfsfólki ráðuneyta fækki í niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Rúmlega 700 manns starfa nú í ráðuneytunum, sem hafa aldrei verið fleiri og allir ráðherrar komnir með tvo aðstoðarmenn. Innlent 30.8.2023 14:32
Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit. Erlent 30.8.2023 14:04
Svandís greinir frá ákvörðun um hvalveiðar á Egilsstöðum Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ætlar að greina frá ákvörðun sinni varðandi framhald hvalveiða að loknum ríkisstjórnarfundi á morgun. Þetta staðfestir Dúi Landmark upplýsingafulltrúi í matvælaráðuneytinu. Um er að ræða sumarfund ríkisstjórnarinnar sem fer fram á Egilsstöðum. Innlent 30.8.2023 14:03
Á rétt á upplýsingum varðandi slysið sem varð syni hans að bana Bandarískur faðir manns sem lést í flugslysi á Þingvallavatni í febrúar 2022 á rétt á upplýsingum um flugmann vélarinnar og fyrirtæki hans frá Samgöngustofu. Þetta úrskurðaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál sem vísaði málinu aftur til stofnunarinnar sem hafði áður hafnað beiðni föðurins. Innlent 30.8.2023 13:43
Má ekki heita Annamaría Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um leyfi til að heita Annamaría að eiginnafni. Nefndin hefur hins vegar samþykkt eiginnöfnin Konstantín, Özur, Aðaley og fleiri. Innlent 30.8.2023 13:15
Ríflega 100 veiktust í fjórum matartengdum hópsýkingum árið 2022 Fjórar stórar matartengdar hópsýkingar voru tilkynntar til sóttvarnalæknis árið 2022. Tvær voru af völdum nóróveiru, ein af völdum E. coli (EPEC) en í einu tilvikinu er orsakavaldurinn enn óþekktur. Innlent 30.8.2023 12:48
Leita allra leiða til að halda dagskrá í óveðri Forsvarsmenn bæjarhátíðarinnar Ljósanætur í Reykjanesbæ leita nú allra leiða til að halda hátíðina samkvæmt dagskrá. Aftakaveðri er spáð næstu helgi þegar hátíðin fer fram. Innlent 30.8.2023 12:45
Segir aukningu á lekanda vera áhyggjuefni Mikil aukning hefur orðið á greindum tilfellum lekanda hér á landi og segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir það vera áhyggjuefni. Á síðasta ári greindust 158 einstaklingar með lekanda samkvæmt ársskýrslu sóttvarna fyrir síðasta ár. Innlent 30.8.2023 12:25
Esjan laus við snjó í fyrsta skipti í fjögur ár Snjóskafli í Gunnlaugsskarði í Esjunni er horfinn í fyrsta skipti frá árinu 2019. Sumur eru sögð þurfa að vera óvenju hlý til þess að skaflinn bráðni alveg. Innlent 30.8.2023 12:20
Hermenn handtóku forseta Gabon Hópur hermanna í Gabon segist hafa handsamað Ali Bongo, forseta landsins. Þrátt fyrir að Bongo hafi kallað eftir mótmælum vegna handtöku hans virðist sem íbúar landsins hafi tekið handtökunni fagnandi. Erlent 30.8.2023 12:14
Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna. Erlent 30.8.2023 12:07
Hádegisfréttir Bylgjunnar Hugsanlegt er að Skaftárhlaup hafi náð hámarki. Að sögn bónda á svæðinu er vatnsmagnið minna nú en oft áður og heimafólk ekki uggandi yfir stöðunni eins og er. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á slaginu tólf. Innlent 30.8.2023 11:59
Hugsanlegt að Skaftárhlaup hafi náð hámarki Sérfræðingar hjá Veðurstofu Íslands funda í dag og kanna hvort flóðatoppnum í Skaftárhlaupi sem hófst í gær sé náð eða hvort hann geti farið hækkandi. Að sögn bónda á svæðinu er vatnsmagnið minna nú en oft áður og heimafólk ekki uggandi yfir stöðunni eins og er. Innlent 30.8.2023 11:16
Gul viðvörun um helgina Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á stóru hluta landsins á föstudagskvöld og fram eftir degi á laugardaginn. Vissara er fyrir fólk að hugsa að trampólínum í görðum víða um land. Veður 30.8.2023 11:15
Skertur opnunartími sundlauga í Árborg tekur gildi Opnunartími Sundhallar Selfoss styttist á föstudaginn þegar aðhaldsaðgerðir sveitarstjórnar Árborgar taka gildi. Sundlaugin á Stokkseyri verður lokuð frá nóvember til mars. Formaður bæjarráðs segist skilja vel að íbúar Árborgar hafi misjafnar skoðanir á aðgerðunum. Innlent 30.8.2023 11:08
Vitni að dýraháska hafi tilkynningar- og hjálparskyldu Héraðsdýralæknir hjá Matvælastofnun segir að fólk hafi tilkynningar- og hjálparskyldu þegar það sér dýr í háska. Tilkynning hefur borist um kindadauðann í Vatnsfirði. Innlent 30.8.2023 11:04
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Harðir bardagar í suðri Úkraínskir hermenn hafa náð tiltölulega miklum árangri í Sapórisjíahéraði í suðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum og vikum. Svo virðist sem aukinn hraði hafi færst í framsókn Úkraínumanna nærri bænum Robotyne en Rússar hafa sent sínar bestu hersveitir á svæðið til að stöðva sóknina. Erlent 30.8.2023 10:56
Lokanir á fjallvegum vegna hlaup í Skaftá Lögreglan á Suðurlandi vekur athygli á lokunum á fjallvegum vegna yfirstandandi hlaups í Skaftá. Í tilkynningu segir að staðan sé reglulega metin með sérfræðingum Veðurstofu Íslands og Almannavörnum. Innlent 30.8.2023 10:40