Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Mér finnst mikil­vægt að ég segi frá minni hlið“

Frosti Logason fjölmiðlamaður segir tíma sinn á sjónum fyrir rúmum tveimur árum hafa verið þann besta í sínu lífi. Hann segist ekki hafa haft Eddu Falak á heilanum eftir að fyrrverandi kærasta hans steig fram í hlaðvarpsþætti hennar fyrir tæpum tveimur árum og sakaði hann um hótanir og andlegt ofbeldi.

Lífið
Fréttamynd

Ian Gelder úr Game of Thrones látinn

Ian Gelder breski leikarinn sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Kevin Lannister í Game of Thrones þáttunum er látinn, 74 ára gamall. Rúmir fimm mánuðir eru síðan hann greindist með krabbamein í gallblöðru.

Lífið
Fréttamynd

Svaka­lega erfitt en stór­kost­legt

Hera Björk Þórhallsdóttir Eurovision fari segir för hópsins til Malmö sem lauk keppni í gær hafa verið svakalega erfiða en lærdómsríka á sama tíma. Hera og íslenski hópurinn hyggst njóta lífsins í Malmö fram á sunnudag en eins og alþjóð veit komst Ísland ekki áfram í undanúrslitum í gærkvöldi.

Lífið
Fréttamynd

Anníe Mist fór í keisaraskurð

Íslenska CrossFit konan Anníe Mist Þórisdóttir eignaðist dreng í síðustu viku en hún tók þá ákvörðun að fara frekar í keisaraskurð en að fara í gegnum náttúrulega fæðingu.

Lífið
Fréttamynd

Ung­frú Banda­ríkin af­salar sér titlinum

Ungfrú Bandaríkin, Noelia Voigt, hefur ákveðið að afsala sér titlinum vegna heilsufarsástæðna. Voigt fór með sigur af hólmi þegar keppnin fór fram í september síðastliðnum. Í tilkynningu sem hún sendi frá sér á Instagram sagðist hún trúa á það að gera það sem er best fyrir „sjálfan sig og geðheilsuna“.

Lífið
Fréttamynd

Sötrað á Kalda í tíu ár

Fullt var út úr dyrum á Kalda bar síðastliðið laugardagskvöld þar sem skálað var fyrir tíu ára afmæli staðarins. Bjórsmakk, jazztónlist og dans var í aðalhlutverki þegar tímamótunum var fagnað í blíðskaparveðri í miðbænum.

Lífið
Fréttamynd

Hera komst ekki á­fram

Framlag Íslands í Eurovision, lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar Þórhallsdóttur, komst ekki upp úr fyrri undanúrslitariðli Eurovision sem fór fram í Malmö í kvöld. 

Lífið
Fréttamynd

Eurovision-hópurinn af­klæðist milli at­riða

Bakraddasöngvarar Heru Bjarkar klæðast glæsilegum svörtum klæðnaði með gylltu kögri í stíl við gylltan samfesting Heru á sviðinu í kvöld. Þrátt fyrir glæsileikann þykir fatnaðurinn með eindæmum óþægilegur og er hópurinn fljótur að henda sér í kósýgallann á milli rennsla. 

Lífið
Fréttamynd

Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi

Skvísur landsins komu saman í Reykjavík Makeup School síðastliðinn föstudag með glæsilegu útgáfuteiti. Meðal gesta voru Manuela Ósk, Pattra, Patrekur Jaime, Dj. Sóley og margir fleiri.

Lífið