Sport

„Það bjóst enginn við því að við myndum fara svona langt“

Andri Már Eggertsson skrifar
Ísold Sævarsdóttir var ánægð með sigurinn
Ísold Sævarsdóttir var ánægð með sigurinn Vísir/Vilhelm

Ísold Sævarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, var í skýjunum eftir sjö stiga sigur gegn Keflavík 86-79.

„Þetta var stórkostleg tilfinning. Við mætum í alla leiki til þess að vinna sama hvort við séum með bakið upp við vegg eða ekki. Mætum tilbúnar og reynum að gera okkar besta,“

Ísold var ánægð með fyrsta leikhluta hjá Stjörnunni sem skilaði 30 stigum og hvernig liðið mætti inn í leikinn.

„Það er alltaf frábært að byrja leiki vel og við þurfum að ná að halda því út sem við gerðum í dag.“

Að mati Ísoldar spilaði Stjarnan frábærlega á báðum endum vallarins í fjórða leikhluta sem varð til þess að Stjarnan vann leikinn.

„Þetta var frábær vörn og sókn. Við vorum á fullu allan tímann sem borgaði sig og við kláruðum þennan leik.“

„Þessar stelpur í Keflavík eru frábærar og við vitum að þær geta sett stór skot ofan í en Katarzyna Trzeciak setti stórt skot ofan í fyrir okkur og þá vorum við komnar langt með þetta.“

En hvernig verður fyrir Stjörnuna að mæta Keflavík í oddaleik á mánudaginn?

„Það bjóst enginn við því að við myndum fara svona langt og við erum að koma mörgum á óvart. Það væri bara frábært fyrir okkur sem eru svona ungar að fá að taka þátt í úrslitunum.“

„Ég held að við höfum alltaf vitað að við gætum þetta en sennilega ekki alveg strax en það var frábært að sjá að við getum stigið upp á svona stórum augnablikum,“ sagði Ísold Sævarsdóttir að lokum spennt fyrir oddaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×