Sport

Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tyson Fury og Oleksandr Usyk mætast í kvöld.
Tyson Fury og Oleksandr Usyk mætast í kvöld. getty/Richard Pelham

Eftir að hafa verið rólegur á síðasta blaðamannafundi fyrir bardagann gegn Oleksandr Usyk var Tyson Fury í ham í vigtuninni í gær.

Fury og Usyk mætast í titilbardaga í þungavigtinni í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í kvöld. Þeir eru báðir ósigraðir á ferlinum.

Á blaðamannafundi í fyrradag neitaði Fury að horfa í augun á Usyk en það var öllu meiri völlur á Englendingnum í vigtuninni í gær.

Fury hallaði sér upp að Usyk og ýtti honum svo. Hann hrópaði jafnframt ókvæðisorð að honum áður en hann gekk af sviðinu.

Fury mældist tæplega 119 kg í vigtuninni og hefur ekki verið léttari í fjögur ár. Usyk vegur hins vegar tæplega 102 kg.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×