Fótbolti

Ó­trú­legir yfir­burðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Barcelona varð í kvöld spænskur bikarmeistari í tíunda sinn.
Barcelona varð í kvöld spænskur bikarmeistari í tíunda sinn. Raul Terrel/Europa Press via Getty Images

Barcelona tryggði sér í kvöld spænska bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki er liðið vann ótrúlegan 8-0 sigur gegn Real Sociedad.

Börsungar hafa haft mikla yfirburði í spænska boltanum undanfarið og liðið er til að mynda löngu búið að tryggja sér Spánarmeistaratitilinn þó enn séu tvær umferðir eftir. Í deildarkeppninni er liðið enn taplaust eftir 28 leiki og með 82 stig af 84 mögulegum.

Real Sociedad situr hins vegar í áttunda sæti deildarinnar.

Það kom því líklega fáum á óvart að Barcelona hafi haft yfirhöndina í leiknum þegar liðin mættust í úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld. Ona Batlle kom liðinu yfir strax á fimmtu mínútu áður en Salma Paralluelo tvöfaldaði forystuna átta mínútum síðar.

Tvö mörk frá hinni norsku Graham og annað mark frá Ona Batlle sáu svo til þess að staða í hálfleik var 5-0, Barcelona í vil.

Mariona Caldentey bætti svo tveimur mörkum við í síðari hálfleik og Claudia Pina einu og niðurstaðan varð því ótrúlegur 8-0 sigur Barcelona.

Börsungar tryggðu sér þar með sinn tíunda bikarmeistaratitil í sögunni og þann fjórða á síðustu fimm árum.

Fyrsta bikarmeistaratitilinn vann liðið árið 1993, en síðan þá hefur liðið fagnað titlinum níu sinnum frá árinu 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×