Sport

Dag­skráin í dag: Besta-deildin og úrslitaeinvígi Subway-deildarinnar

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
441910815_10159516102397447_7998249467541173069_n

Besta-deild karla í knattspyrnu og úrslitaeinvíg Subway-deildar karla í körfubolta verða í sviðsljósinu á sportrásum Stöðvar 2 í dag.

Stöð 2 Sport

Við hefjum leik á viðureign Vestra og Víkings í Bestu-deild karla klukkan 13:50 áður en KA tekur á móti Fylki klukkan 16:05.

Klukkan 18:30 hefst svo bein útsending frá öðrum leik Grindavíkur og Vals í úrslitaeinvígi Subway-deildar karla í körfubolta þar sem Valsmenn leiða einvígið 1-0. Að leik loknum munu sérfræðingar Körfuboltakvölds svo fara yfir allt það helsta úr leiknum.

Stöð 2 Sport 3

Salernitana tekur á móti Hellas Verona í ítalska boltanum klukkan 16:20 áður en Bologna og Juventus eigast við klukkan 18:35.

Stöð 2 Sport 5

FH og KR eigast við í Bestu-deild karla klukkan 16:45 og klukkan 19:10 verða Ísey Tilþrifin á sínum stað til að gera upp allt það helsta úr leikjum dagsins.

Vodafone Sport

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München heimsækja Hoffenheim í þýska boltanum klukkan 13:25.

Klukkan 16:50 eigast svo Hammarby og Rosengard við í sænska boltanum áður en viðureign Red Sox og Blue Jays í NHL-deildinni í íshokkí lokar dagskránni klukkan 22:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×