Innlent

„Al­gjör­lega for­kastan­legt“ ef stjórn­völd svari ekki beiðninni

Ólafur Björn Sverrisson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Helgi Þorsteinsson Silva er lögmaður Blessing.
Helgi Þorsteinsson Silva er lögmaður Blessing. vísir/Steingrímur Dúi

Lögmaður konu, sem vísa á úr landi á morgun og er alls ekki ferðafær samkvæmt læknisvottorði, segir það algjörlega forkastanlegt ef stjórnvöld svari ekki beiðni þess efnis að brottvísun verði frestað á grundvelli vottorðins. 

Umrædd kona heitir Blessing Uzoma Newton og er frá Nígeríu. Til stendur að vísa henni úr landi á morgun. Hún er eins og áður segir við mjög slæma heilsu og alls ekki ferðafær samkvæmt læknisvottorði. Konan er ein þriggja sem setið hafa í varðhaldi frá því á föstudag, og stendur til að senda til Nígeríu.

Í læknisvottorðinu, sem Vísir hefur undir höndum, kemur fram að Blessing sé með æxli í kviðarholi, sem hafi stækkað töluvert að undanförnu.  Lífsnauðsynlegt sé að Blessing hafi greiðan aðgang að bráðaþjónustu sérhæfðra kvennadeilda á sjúkrahúsi. Hún þurfi þétt eftirlit, blóðprufur og blóðgjöf eða járngjafir í æð þegar þess þarf með.

Helgi Silva lögmaður Blessing segir engin svör hafa borist frá yfirvöldum við kröfu um að brottvísun hennar verði frestað á grundvelli þessara upplýsinga.

„Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,“ segir Helgi. Gögn sem þessi séu jafnframt óalgeng.

„Það er afar sjaldgæft að vera með læknisvottorð þar sem svona sterklega er tekið til orða. Ég get ekki munað eftir nema einu eða tveimur slíkum málum. Í þeim tilvikum var einmitt hætt við brottvísun.“

Áttu von á því að fá einhver svör eða áttu von á því að þetta sé endanleg niðurstaða, þrátt fyrir þetta?

„Það væri ákaflega dapurlegt ef það myndu engin svör berast áður en af þessu verður. Í raun algjörlega forkastanlegt. Ef þessari beiðni er hafnaði með því að svara henni ekki, þá er það náttúrulega gríðarlega alvarlegt mál, miðað við aðstæður þessarar konu. Þannig ég verð eiginlega að vona og trúa því að þessu verði svarað áður en hún fer úr landi,“ segir Helgi sem kveðst þó ekki vita hvenær dags það yrði. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×